Linda Ben

Stracciatella ostakaka

Stracciatella ostakaka

Silkimjúk ostakökufylling með uppáhalds Stracciatella grísku jógúrtinu okkar og rjómaosti og stökkur súkkulaðikexbotn, þetta er fullkomið jafnvægi á milli ferskleika og djúps súkkulaðibragðs. Áferðin er létt og mjúk en samt rík.

Það besta við þessa uppskrift er líka hversu þægileg hún er. Enginn bakstur, bara einföld samsetning og smá tími í frysti.

Ég ákvað að gera mini ostakökur í hjartalaga sílíkonformi sem ég fékk hér, en það er hægt að setja þessa ostaköku í hvaða form sem er, t.d. 23 cm smelluform.

Þetta er svona eftirréttur sem lítur út eins og þú hafir lagt mikla vinnu í hann, en er í raun ótrúlega auðveldur.

Hjatralaga Stracciatella ostakaka

Hjatralaga Stracciatella ostakaka

Hjatralaga Stracciatella ostakaka

Hjatralaga Stracciatella ostakaka

Hjatralaga Stracciatella ostakaka

Hjatralaga Stracciatella ostakaka

Hjatralaga Stracciatella ostakaka

Stracciatella ostakaka

  • 240 g súkkulaðikex (ég nota Frón Noir)
  • 200 g rjómaostur
  • 180 g Stracciatella grískt jógúrt frá Örnu Mjólkurvörum
  • 150 g fflórsykur
  • 300 g ml rjómi frá Örnumjókurvörum
  • 200 g suðusúkkulaði (skipt í 150 g og 50 g)

Aðferð:

  1. Setjið súkkulaðikexið í matvinnsluvél og maukið. Ef þú notar Noir kexið þá mun það verða að blautu mauki og þú þarft ekki að bæta við smjöri. Annars bætiru við 70 g bræddu smjöri út í kexmynsluna.
  2. Setjið í botninn á kökufominu. Ég notaði hjartalaga sílíkonform sem ég fékk hér.
  3. Setjið rjómaost, stracciatella grísku jógúrtina og flórsykur í skál, blandið öllu vel saman.
  4. Þeytið rjómann og blandið honum saman við jógúrtblönduna með sleikju.
  5. Saxið 150 g súkkulaði smátt niður og bætið út í blönduna, blandið varlega saman við með sleikju.
  6. Setjið blönduna ofan á kexbotninn og geymið í frysti í a.m.k. 8 klst eða lengur.
  7. Takið kökurnar úr forminu og setjið á fallegan disk. Bræðið 50 g súkkulaði yfir vatnsbaði og skreytið kökuna með súkkulaðinu.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Fylgstu með á Patreon!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Hjatralaga Stracciatella ostakaka

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5