Hér höfum við hræðilegan hrekkjavökudrykk sem lítur út fyrir að vera að blæða út. Ótrúlegt en satt bragðast hann alveg frábærlega enda inniheldur hann mangó, banana, vanillu og kókosjógúrt sem er svo allt toppað með trönuberjasafa.
Hrekkjavöku smoothie
- 2 dl frosið mangó
- 1/2 banani
- 1 1/2 dl hafrajógúrt með vanillu og kókos frá Veru Örnudóttir
- Trönuberjasafi
Aðferð:
- Setjið mangó, banana og hafrajógúrt í blandara og blandið þar til orðið að drykk, hellið í glas.
- Bætið örlítið af trönuberjasafa yfir og hrærið honum svolítið saman við.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar
Category: