Það er fátt sem slær út ferska og fallega sangríu, sérstaklega þegar hún er gerð með hvítvíni og litríkum ávöxtum. Þessi hvítvíns sangría er létt, frískandi og full af ferskum sítrus- og eplabragði, með ljúfri sætu sem gerir hana mjúka og auðdrekkanlega.
Grunnurinn er gott hvítvín eins og Adobe Chardonnay, sem gefur drykknum fallega fyllingu og ferskleika. Appelsínur, epli og mynta bæta við náttúrulegri sætu og ilm, á meðan Cointreau og heimagert sykursíróp draga fram bragðið og gera drykkinn dásamlega góðan.
Þetta er svona drykkur sem hentar jafnt í brunch, sumarboð, vinkonukvöld eða sem léttur kokteill fyrir gesti. Fallegt glas, klakar og fullt af ávöxtum. Einfalt, elegant og ótrúlega gott 🥂🍊




Hvítvíns sangría
- 200 ml Adobe Chardonnay belja – 1,5 líter
- 15 ml cointreau
- 15 ml sykursíróp (200 ml vatn + 200 g sykur brætt saman á vægum hita)
- Sódavatn
- Epli
- Appelsínur
- Myntulauf
- Klakar
Aðferð:
- Byrjið á því að útbúa sykursírópið með því að setja vatn og sykur saman í pott og bræða varlega saman.
- Skerið nokkrar appelsínur og epli í sneiðar.
- Setjið vel af klökum, appelsínusneiðum og eplasneiðum í fallegt vínglas.
- Setjið u.þ.b. 200 ml af hvítvíni í glasið ásamt 1 msk Cointreau og 1 msk sykursíróp, hrærið öllu svolítið saman.
- Skreytið með myntuulaufum.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar







