Ég veit ekkert betra en að fá mér góðan kaffibolla, í hreinskilni sagt gæti ég ekki komist í gegnum daginn án þess.
Núna þegar jólin nálgast finnst mér æðislegt að útbúa ilmandi hátíðar kaffi og bjóða svo góðum vinkonum í kaffi og smákökur eða súkkulaði.
Húsið ilmar alltaf svo ótrúlega vel þegar ég geri þetta kaffi, kemur manni alveg í rétta jóla andann!
Ilmandi hátíðar kaffi
Uppskriftin miðast við 4 bolla
- 4 dl mjólk
- ½ tsk kanill
- ¼ tsk negull
- ¼ tsk múskat
- ½ tsk engifer
- 1 msk sykur
- G-mjólk (eða önnur mjólk sem freyðist vel)
- Kaffi
- Súkkulaði flögur
Aðferð:
- Setjið mjólkina í lítinn pott ásamt kryddum og sykri. Hitið við vægan hita í 30 mín, passið að láta alls ekki sjóða.
- Hellið upp á kaffi, hellið krydd mjólkinni upp ¾ hluta af bollanum.
- Setjið G-mjólk í mjólkurflóaran og hellið í bollan svo hann fyllist, setjið örlítið af súkkulaði flögum yfir til að skreyta.
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category: