Ef þig langar í eitthvað sætt sem er samt léttara og næringarríkara þá er þessi jarðaberja skyrbaka algjör snilld.
Bakan er mjúk og safarík með ljúfu jarðaberjabragði og fær náttúrulega próteinríka fyllingu úr skyri og eggjum. Möndlumjölið gefur henni milda hnetukeim og aðeins „dense“ áferð á meðan frosnu jarðaberin bakast ofan í bökuna og gera hana extra sæta og djúsí.
Þetta er svona uppskrift sem hentar jafnt sem léttur réttur í morgunmatinn eða bruunch, kaffimeðlæti eða próteinríkt snarl yfir daginn. Hún er einföld í gerð, þarf engar flóknar skreytingar og verður falleg með ferskum jarðaberjum og smá flórsykri yfir.
Fullkomin þegar þú vilt eitthvað gott sem þú getur notið með góðri samvisku 🍓✨






Jarðaberja skyrbaka
- 2 jarðaberjaskyr
- 2 egg
- 1 skeið próteinduft
- 50 g möndlumjöl
- 1 tsk vanilludropar
- 1 msk hunang (má sleppa)
- 2 dl frosin jarðaber
- Fersk jarðaber
- Örlítill flórsykur
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
- Setjið skyrið í skál áamt eggjum, próteindufti, möndlumjöli og vanilluudropum. Þið getið bætt við smá hunangi ef þið viljið hafa bökuna sætari. Hrærið öllu saman og hellið í smurt form sem er 20×25 cm eða sambærilega stórt.
- Dreifið frosnum jarðaberjum yfir formið og bakið í 25 mín.
- Kælið bökuna, skreytið með ferskum jarðaberjum og sigtið örlítið af flórsykri yfir.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar










