Linda Ben

Jarðaberja súkkulaðikaka

Recipe by
1 klst
Cook: Unnið í samstarfi við Innnes | Servings: 8-10 manns

Jarðaberja súkkulaðikaka

Þessi jarðaberja súkkulaðikaka er fullkomið dæmi um klassískt bragð sem klikkar aldrei. Djúsí súkkulaðibotnarnir eru að sjálfsögðu gerðir með Ljúffengri súkkulaðiköku þurrefnablöndu Lindu Ben, fersk jarðaberjasulta og silkimjúkt jarðaberja smjörkrem gera kökuna bæði létta og alveg ómótstæðilega.

Kakan er falleg í uppsetningu en afar einföld í framkvæmd, fullkomin í afmæli, veislur eða þegar maður vill baka eitthvað sem lítur út eins og úr bakaríi en er gert heima.

Pam bökunarspreyið er algjör snilld þegar maður er að baka. Maður einfaldlega spreyjar bökunarformið áður en maður hellir deiginu í það og kakan nánast flýgur sjálf úr forminu eftir bakstur, það er það auðvelt að ná kökunni úr.

Ég fýla að nota Pam spreyjið þar sem það er mjög fljótlegt og einfalt að nota það. Maður þar ekki að hafa áhyggjur af því að gleyma að smyrja einhvern blett sem endar á því að festa kökuna í forminu og brjóta kökuna í leiðinni og maður reynir að ná henni upp úr forminu. Ég hef líka tekið eftir að kökurnar bakast sléttari þegar ég nota Pam bakstursspreyið.

Jarðaberja súkkulaðikaka

Jarðaberja súkkulaðikaka

Jarðaberja súkkulaðikaka

Jarðaberja súkkulaðikaka

Jarðaberja súkkulaðikaka

Jarðaberja súkkulaðikaka

Jarðaberja súkkulaðikaka

Jarðaberja súkkulaðikaka

Jarðaberja súkkulaðikaka

  • Ljúffeng súkkulaðikaka þurrefnablanda Linda Ben
  • 3 egg
  • 1 dl vatn
  • 1 1/2 dl bragðlítil olía
  • Pam bökunarolíu sprey
  • Jarðaberjasulta

Jarðaberja smjörkrem

  • 400 g mjúkt smjör
  • 500 g flórsykur
  • 2 dl frosin jarðaber
  • 500 g jarðaber

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
  2. Setjið súkkulaði þurrefnablönduna í skál ásamt eggjum, olíu og vatni, hrærið þar til orðið að mjúku deigi.
  3. Spreyið tvö 20 cm smellufom vel svo þau verði alveg hvít. Skiptið súkkulaðikökudeiginu á milli formanna og bakið í 20-25 mín eða þar til kökurnar eru bakaðar í gegn. Kælið kökurnar og útbúið kremið á meðan.
  4. Afþíðið jarðaberin og maukið þau í blandara.
  5. Setjið smjörið og flórsykur í hrærivél og þeytið saman, bætið jarðaberja maukinu út í og þeytið þar til létt, mjúkt og loftmikið (þeyta í a.m.k. í 5 mín). Setjið kremið í sprautupoka.
  6. Skerið 300 g jarðaber í litla bita.
  7. Skerið kökubotnana þvert í helminga svo það verði til tveir þynnri botnar úr einum. Setjið fyrsta kökubotninn á kökudisk. Sprautið smá kökukremi á botninn og sléttið úr, lagið á að vera frekar þunnt. Sprautið svo þykkara kremi á úthring kökubotnsins svo myndist kanntur. Setjið 1 msk jarðaberjasultu á kremið og sléttið úr. Setjið 100 g af jarðaberjabitum ofan á sultuna. Setjið næsta kökubotn ofan á og endurtakið fyrir næstu botna. Þegar þið setjið fjórða og efsta kökubotninn á þá setjiði krem yfir hann og hliðar kökunnar. Sléttið úr kreminu.
  8. Skerið það sem eftir er af jarðaberunum í helminga og raðið á kökuna.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Fylgstu með á Patreon!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Jarðaberja súkkulaðikaka

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5