Það er skemmtilegt að taka smá tvist á mjólkurhristinginn og setja hann í smá jólabúning. Það er svo einfalt! Einu nauðsynlegu hráefnin eru Mjúkís með heslihnetum og súkkulaði frá Kjörís, smá mjólk, jólastafur og rjómi.
Jóla mjólkurhristingur
- ½ l Mjúkís með súkkulaði og heslihnetur
- 2 dl mjólk
- 2 jólastafir (bismark)
- Þeyttur rjómi
- Súkkulaðikurl
Aðferð:
- Setjið mjúkís í blandara ásamt mjólk og einum jólastaf, blandið og hellið svo í glös.
- Skreytið með þeyttum rjóma og brjótið jólastaf yfir rjómann og skreytið með súkkulaðikurli.
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category: