Linda Ben

Jólaostabakkakrans með piparköku snakki

Recipe by
7 mín
Cook: Unnið í samstarfi við ÍSAM

Jólaostabakkakrans með piparköku snakki.

Hér höfum við svo einfaldan og góða ostabakka sem er raðað upp eins og krans. Hann saman stendur af blámyglu, hvítmyglu og hörðum ostum, ólífum, berjum, sultu og alveg svakalega góðu Finn Crisp snakki sem er með piparkökubragði.

Margir þekkja blámygluostur+piparkaka samsetninguna en ég mæli svo svakalega mikið með að þið prófið blámygluost með Finn Crisp piparkökusnakki. Sú samsetning er ennþá betri að mínu mati! Minna sæt, stökkari og betri.

Jólaostabakki með piparköku snakki

Jólaostabakki með piparköku snakki

Jólaostabakki með piparköku snakki

Jólaostabakki með piparköku snakki  Jólaostabakki með piparköku snakki

Jólaostabakki með piparköku snakki

Jólaostabakki með piparköku snakki

  • Blámygluostur
  • Hvítmygluostur
  • Harður ostur
  • Grænar ólífur (mér finnst með steini miklu betri)
  • Hindberjasulta (ég nota St. Dalfour)
  • Jarðaber
  • Hindber
  • Finn Crisp snakk með piparkökubragði
  • Ferskt rósmarín sem skraut

Aðferð:

  1. Raðið fyrst ostunum á bakkann (ég raðaði öllu á úthring bakkans svo myndaðist svona jólakrans)
  2. Setjið ólífur í skál og hindberjasultu í aðra skál, setjið á bakkann.
  3. Raðið Finn Crisp snakkinu líka á bakkann ásamt jarðaberjum og hindberjum.
  4. Skreytið með fersku rósmarín til að fullkomna jólaútlitið.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Jólaostabakki með piparköku snakki

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5