Velkomin aftur!
Þetta var heldur betur dramatísk vika en síðan mín www.lindaben.is lá niðri í meir en viku og það á versta tíma! Núna þegar allir eru að byrja jólabaksturinn er ekki gott að geta ekki nálgast uppskriftir af girnilegum kökum eins og þessum. En allt er gott sem endar vel, og jeminn eini hvað það er gott að vera komin með síðuna upp aftur!
Svo ég best viti þá lifðu allar uppskriftirnar hrunið af nema ein og var það uppskriftin sem ég fékk flestar fyrirspurninar um á meðan síðan lá niðri. Ég sýndi líka frá því þegar ég bakaði þessar kökur á Instagram þar sem viðtökurnar voru mjög miklar, greinilegt að þessar karamellu fylltur súkkulaðibita smákökur slóu vel í kramið hjá mörgum.
Hér kemur því uppskriftin inn í annað skipti.
Karamellufylltar súkkulaðibita smákökur:
- 2,5 dl púðursykur
- 1 dl sykur
- 230 g smjör við stofuhita
- 2 stór egg
- 6 dl hveiti
- 1/2 tsk matarsódi
- 1/4 tsk salt
- 2 tsk vanilludropar
- 150 g súkkulaðibitar
- 2 pakkar karamellufyllt súkkulaði
Aðferð:
- Stillið ofninn á 165°C
- Byrjið á því að hræra saman sykur og smjör þangað til blandan verður létt og loftmikil.
- Setjið eggin út blönduna, eitt í einu.
- Setjið hveiti, matarsóda og salt út í og blandið varlega saman.
- Bætið vanilludropunum saman við ásamt súkkulaðibitunum og blandið saman varlega með sleikju.
- Útbúið kúlu úr deiginu og fletjið það svo út í lófanum, setjið eitt karamellufyllt súkkulaði og lokið svo súkkulaðið inn (smá mynd). Fletjið kökuna svolítið út og setjið á smjörpappír. Bakið inn í ofni í um það bil 15 mín eða þegar kökurnar eru örlítið byrjaðar að brúnast. Passið samt að baka þær ekki of mikið því þær eru bestar þegar þær haldast aðeins mjúkar eftir að þær hafa kólnað.
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á myndinni á Instagram @lindaben
Ég minni þig á að fylgjast með mér á Instagram en þar er ég oft að elda og baka og sýni “step-by-step” frá matseldinni. Ýttu hér til að fylgjast með á Instagram!
Njótið vel!
Ykkar Linda Ben
Þessi færsla er kostuð.
Æðislegar þessar 🙂
Var að baka þær aftur þvi þær kláruðust strax:-)