Þessir karamellukurls bitar með ostakökutoppi er örugg leið til að slá í gegn, hvort sem það er sem eftirréttur eftir góða máltið, eða sem sætur lítill biti í veislu. Þessir bitar eru extra mjúkir, djúsí og örlítið „fudgy”.
Hér notaði ég ljúffengu súkkulaðikökumixið ftá Lindu Ben og til að ná þessari djúsí og blautu áferð bætti ég fleiri eggjum og meira af olíu í deigið. Bætti svo karamellukurli út í deigið og bakaði kökuna aðeins styttra en venjulega. Útkoman er djúp súkkulaðikaka sem er mjúk í miðjunni og næstum brownie-kennd, með karamellukurlinu sem bráðnar aðeins inn í kökuna og gefur litla karamellubita hér og þar.
Ofan á hvern bita fer svo létt og silkimjúk súkkulaðiostakaka sem er næstum eins og mousse í áferð. Ég toppa svo með karamellukurli og ferskum berjum sem gefa bæði fallegt útlit og smá ferskleika á móti súkkulaðinu.
Útkoman eru litlir sætir kökubitar sem eru fullkomnir á veisluborð, sem eftirréttur, í saumaklúbbinn, afmæli eða þegar maður vill gera eitthvað aðeins meira spennandi en hefðbundna köku. Þetta eru svona bitar sem klárast alltaf fyrst.





Karamellukurls bitar með ostakökutoppi
- Ljúffeng súkkulaðikaka Lindu Ben – þurrefnablanda
- 4 egg
- 2 dl olía/brætt smjör
- 1 dl vatn
- 150 g Síríus sælkerabaksturs karamellukurl
Ostakaka
- 200 g rjómasúkkulaði
- 200 g rjómaostur
- 400 ml rjómi
- Síríus sælkerabaksturs karamellukurl
- Ber (ég notaði brómber en það er alveg valfrjálst hvernig ber)
Aðferð:
- Setjið súkkulaðiþurrefnablönduna í skál ásamt eggjum, olíu/bræddu smjöri og vatni, hrærið saman. Bætið karamellukurlinu út í deigið og hellið í smurt 30×40 cm stórt form (eða sambærilega stórt) og bakið í 16-20 mín eða þar til endarnir eru fullbakaðir en miiðjan ennþá örlítið blaut inní. Kælið kökuna og skerið í litla bita.
- Bræðið rjómasúkkulaði yfir vatnsbaði og leyfið því svo aðeins að kólna.
- Takið páskaeggin úr álumbúðunum og setjið á skurðarbretti.
- Setjið rjómaost og brædda rjómasúkkulaðið í skál og blandið saman.
- Þeytið rjóma og blandið varlega saman við rjómaostasúkkulaðiblönduna með sleikju. Það er þægilegt að setja ostakökudeigið í sprautupoka hér en ekki nauðsynlegt.
- Þegar kakan er orðin alveg köld, setjiði örlítið af ostakökunni ofan á hvern kökubita. Skreytin hvern bita með berjum og karamellukurli.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar









