Linda Ben

Kjúklingasalat á súrdeigs samlokubrauð

Recipe by
Cook: Unnið i samstarfi við ÍSAM

Kjúklingasalat á pagen súrdeigs samlokubrauð er alveg frábær hugmynd hvenær sem er. Hvort sem er í nestið eða bara þegar maður vill eitthvað einfalt og gott.

Pagen súreigsbrauðið er eistaklega mjúkt og bragðgott. Ólíkt öðrum súrdeigsbrauðum er það með mjúkri skorpu sem krakkarnir og aðrir elska. Það er án allrar aukaefna svo sem rotvarnarefna sem gerir þetta brauð að einstaklega hollum valkosti.

Ég geymi þetta brauð alltaf í frystinum hér heima og rista svo þegar okkur langar í brauð. Brauðið geymist líka vel í ísskáp. 

kjúklingasalat á súrdeigs samlokubrauð

kjúklingasalat á súrdeigs samlokubrauð

kjúklingasalat á súrdeigs samlokubrauð

kjúklingasalat á súrdeigs samlokubrauð

Kjúklingasalat á súrdeigs samlokubrauð

  • 300 g foreldaðir kjúklingastrimlar
  • 1 epli
  • 1 sellerístöngull
  • 1 rauður chilli (án fræja ef má ekki vera sterkt)
  • 3 stilkar voraukar
  • 7 g fersk steinselja
  • 3 msk mæjónes
  • 2 tsk stekt dijon sinnep
  • Salt og pipar
  • Pagen súrdeigsbrauð

Aðferð:

  • Setjið kjúklingastimlana ofan í skál.
  • Skerið smátt niður epli, sellerí, chillí, vorlauka og steinselju og bætið ofan í skálina ásamt mæjónesi og dijon sinnepi. Blandið öllu saman.
  • Kryddið til með salti og pipar eftir smekk.
  • Setjið á pagen súrdeigsbrauð.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5