Linda Ben

Köld grillsósa með kryddjurtum

Recipe by
5 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Örnu Mjólkurvörur

Köld grillsósa með kryddjurtum er mjög góð sósa með öllum grillmat, hvort sem það er með kjúkling, lambakjöti eða öðru.

Sósan er bragðmikil og fersk en líka holl og góð fyrir okkur.

Það skiptir gríðarlega miklu máli að gera sína eigin sósur heima sem eru án rotvarrnarefna og aukaefna. Svo tekur það líka enga stund að gera sósur heima og þær bragðast miklu bettur.

Ég mæli með að gera sósuna með u.þ.b. klukkutíma fyrirvara svo hún nái að taka sig og öll brögðin blandist vel saman. Sósuna getur þú geymt inn í ísskáp í 2-3 daga í lokuðu íláti.

Köld grillsósa með kryddjurtum

Köld grillsósa með kryddjurtum

Köld grillsósa með kryddjurtum

Köld grillsósa með kryddjurtum

  • 3 kúfaðar matskeiðar af grískri jógúrt frá Örnu Mjólkurvörum
  • 1 hvítlauksgeiri
  • 1 tsk hunang
  • 7 g dill
  • 7 g mynta
  • 1 msk ólífu olía
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Skerið kryddjurrtirrnar smátt niður og setjið í skál ásamt öllum öðrum innihaldsefnum. Blandið saman. Gott er að leyfa sósunni að taka sig í u.þ.b. klukkustund fyrir mat ef hægt, en annars ekkert stress ef það er ekki tími fyrir það.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Köld grillsósa með kryddjurtum

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5