Halloween bakstur með börnunum. Allir elska Rice Krispies, sérstaklega krakkarnir. Mér fannst því upplagt að búa til hrekkjavökubakstur úr þessu góðgæti. Ég bætti við Eitt Sett kurli í kökurnar en það kom alveg svakalega vel út, skemmtilegt tvist á þessar klassísku kökur.
Kóngulóar Rice Krispies með Eitt Sett lakkrískurli
- 1 plata karamellufyllt pralín súkkulaði frá Nóa Síríus
- 100 g suðu súkkulaði frá Nóa Síríus + 50 g til að nota seinna
- 60 g smjör
- 60 ml síróp
- u.þ.b. 100 g Rice Krispies eða þar til áferðin er orðin góð.
- 150 g Eitt Sett lakkrískurl
- Salt stangir
- Rauðar súkkulaðiperlur frá Nóa Síríus
Aðferð:
- Bræðið saman smjör og síróp, leyfið því að malla saman við vægan hita í örfáar mínútur. Slökkvið undir pottinum.
- Brjótið súkkulaðið út í pottinn og bræðið saman við hægt og rólega (ætti ekki að þurfa að kveikja undir pottinum aftur, best að sleppa því)
- Bætið rice crispies út í og blandið öllu varlega saman þar til allt Rice Krispiesið er þakið súkkulaði. Bætið Eitt Sett lakkrískurlinu út í og blandið saman.
- Raðið pappír bollakökuformum í ál bollakökubakka (ég mæli með þessu formi) og setjið Rice Krispies kökurnar í formin. Brjótið salt stangir í 3 hluta hverja stöng, bræðið smá suðu súkkulaði og dýfið í súkkulaðið. Raðið 8 bútum af súkkulaðihjúpuðum salt stöngunum ofan í hvert form.
- Setjið í kæli í 4-5 klst eða þar til kökurnar hafa stirðnað. Takið úr formunum.
- Festið rauðar súkkulaðiperlur á kökurnar svo þau líti út fyrir að vera augu.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar
Category: