Kramdar parmesan kartöflur með allioli sósu eru örugglega bestu kartöflur sem þú átt eftir að smakka. Hýðið á kartöflunum verður smá stökkt en kartöflurnar sjálfar mjúkar og góðar. Parmesan osturinn og allioli sósan draga fram bestu hliðar kartaflanna og gera þær að fullkonnu meðlæti með hverju sem er.
Kramdar parmesan kartöflur með allioli sósu
- 1 kg litlar kartöfkur t.d. smælki
- Salt
- Parmesan ostur
- Ferskt timjan
- 1 dós Allioli sósa
Aðferð:
- Sjóðið kartöflurnar þar til þær eru mjúkar í gegn.
- Hellið vatninu af kartöflunum og kveikið á ofninum, stillið á 200°C undir og yfir hita.
- Setjið smjörpappír á ofnplötu og raðið kartöflunum á plötuna. Kremjið kartöflurnar t.d. með glasi.
- Rífið vel af parmesan yfir kartöflurnar og dreifið salti yfir líka. Bakið í u.þ.b. 15 mín eða þar til osturinn er byrjaður að gyllast örlítið.
- Takið út úr ofninum og dreifið fersku timjan yfir.
- Berið fram með allioli sósu
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar
Category: