Krúttleg trítla kaka með hvítsúkkulaði smjörkremi. Þessi kaka er fullkomin í hvaða veislu sem er, falleg og bragðgóð. Hún er alveg örugg til að slá í gegn hjá krökkunum sem elska nammikökur sem eru fallegar á litin.
Krúttleg trítla kaka með hvítsúkkulaði smjörkremi
- 500 g Linda Ben Ljúffeng vanillukaka þurrefnablanda
- 3 egg
- 150 g brætt smjör/150 ml bragðlítil olía
- 1 dl vatn
- Smjörkrem (uppskrift hér fyrir neðan)
- 300 g Nóa súper súrir trítlar
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 180°C, undir og yfir hita.
- Setjið þurrefnablönduna, egg, brætt smjör/olíu og vatn í skál. Hrærið rólega saman í 3-4 mínútur eða þar til deigið hefur samlagast og orðið glansandi.
- Smyrjið fjögur 20 cm smelluform og skiptið deiginu á milli formanna. Bakið í u.þ.b. 20 mín eða þar til kökurnar eru bakaðar í gegn.
- Kælið botnana að stofuhita og útbúið kremið á meðan. Uppskriftin er hér fyrir neðan.
Hvítsúkkulaði smjörkrem
- 500 g mjúkt smjör
- 500 g flórsykur
- 200 g Síríus hvítt súkkulaðidropar
- 1 dl rjómi
Aðferð
- Bræðið saman hvítt súkkulaði og rjóma, kælið blönduna.
- Hrærið smjörið þar til það er létt og ljóst.
- Bætið flórsykrinum saman við og hrærið þar til létt og loftmikið.
- Bætið hvítsúkkulaðibráðinni út í og hrærið þar til silkimjúkt.
- Skiptið kreminu í 6 skálar. Setjið matarlit út í 3 skálar, grænann, gulan og bleikan.
- Setjið einn botn á kökudisk og græna kremið ofan á hann, næsta botn yfir og gula kremið ofan á hann, næsta botn og setjið bleika kremið ofan á hann. Setjið fjórða botninn ofan á og setjið krem úr einni skál (hvítt krem) ofan á kökuna, úr einni skál á hliðar kökunnar. Það sem eftir er af kreminu setjiði í sprautupoka með stjörnustút og sprautið á kökuna með fram kökudiskinum og úthring kökunnar að ofan. Sprautiði líka kremi á hliðar kökunnar eins og á myndunum.
- Skreytið með súper súrum trítlum.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar
Category: