Það er fátt hátíðlegra en vel eldað lambakjöt, sérstaklega þegar það er hjúpað í silkimjúkri sítrónu sinnepsmarineringu sem gefur bæði sætan og örlítið kryddaðan tón. Í þessari uppskrift nota ég Maille gróft og hunangs sinnep, sítrónubörk og ferskt rósmarín sem gera lambahrygginn ómótstæðilegan og fullkominn fyrir hvort sem flotta helgarsteik eða við hátíðlegri tilefni.
Þessi réttur er fljótlegur, elegant, og lítur út eins og hann komi beint af veitingastað, en er samt ótrúlega einfaldur að gera.





Lamba hryggur í sítrónu sinnepsmarineringu
-
1 lambahryggur
Sítrónu sinnepsmarinering
- 2 msk Maille gróft sinnep
- 2 msk Maille hunangs sinnep
- 2–3 msk ólífuolía
- 1 msk rifsberjagel
- 2 hvítlauksrif, pressuð
- Börkur af 1/2 sítrónu
- 1 msk saxað rósmarín
- ½ sítrónu, safi
- 1 tsk salt og pipar
Aðferð
- Búið til marineringuna með því að hræra saman sinnepi, dijon, hunangi, ólífuolíu, hvítlauk, rósmaríni, timían, sítrónusafa og salti.
- Skerið í fituna á lambahryggnum með mjög beittum hníf, skerið fyrst langgsum og svo þvert á svo myndist tíglar. Passið að skera bara ofan í fituna, ekki ofan í kjötið.
- Penslið marineringuna á allan hryggin og geymið í platfilmu yfir nótt eða eins lengi og tími gefst til.
- Kveikið á ofninum og stillið á 160°C, undir og yfir hita.
- Setjið inn í ofn og bakið þar til innri hiti mælist 55–57°C, með kjöthitamæli, fyrir medium-rare.
- Takið úr ofni og hvílið í 8–10 mínútur áður en þið skerið í fallega bita.
Lambasoðs sveppasósa
- 1 msk smjör
- 1 llítill laukur
- 250 g sveppr
- 1 hvítlauksgeiri
- 400 ml vatn
- Soðið sem fellur af lambakjötinu
- 1-2 msk lambakraftur
- 1 msk Maille dijon sinnep
- 1 msk rifsberjagel
- 1 dl rauðvín
- Sósuþykkir eftir þörfum
- Salt & pipar
Aðferð:
- Skerið niður laukinn mjög smátt niður og steikið upp úr smjöri.
- Skerið sveppina í sneiðar og bætið út á pottinn, steikið þar til mjúkir í gegn.
- Rífið hvítlauksgeirann út á og steikið létt. Bætið vatninu og soðinu út í pottinn.
- Setjið 1 msk af lambakrafti út í pottinn ásamt sinnepi, rifsberjageli og rauðvíni. Látið sósuna sósuna malla rólega í 10 mín.
- Smakkið til með salti, pipar, meira af krafti og sinnepi.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar


Category:









