Linda Ben

Lax í hunangssoja með mangósalsa

Lax í hunangssoja með mangósalsa

Þessi lax í hunangssoja með fersku mangósalsa er svona réttur sem er bæði léttur, bragðmikill og fullkominn þegar maður vill eitthvað sem er bæði hollt og ótrúlega gott.

Laxinn er steiktur á pönnu með hvítlauk, sojasósu og hunangi sem gefur honum fallega karamellíseraða áferð og jafnvægi milli sætu og salts. Hér nota ég ferskan lax frá Samherja sem kemur með roði og verður því extra safaríkur og fallegur þegar hann er steiktur rétt. Landlax frá Samherja er ræktaður í landeldi sem er vistvænn og hollur kostur.

Ofan á fer svo litrík og fersk mangósalsa með tómötum, rauðlauk, lime og kóríander sem lyftir réttinum alveg á næsta level. Salsan gefur bæði ferskleika og smá sýru sem passar fullkomlega með mjúkum og bragðmiklum laxinum.

Með einföldum hrísgrjónum verður þetta réttur sem er bæði fljótlegur, fallegur á disknum og fullkominn fyrir bæði hversdags og helgarmatinn.

lax í hunangssoja marineringu með mangósalsa

lax í hunangssoja marineringu með mangósalsa lax í hunangssoja marineringu með mangósalsa

lax í hunangssoja marineringu með mangósalsa

lax í hunangssoja marineringu með mangósalsa

lax í hunangssoja marineringu með mangósalsa

Lax í hunangssoja með mangósalsa

  • Landlax – ferskur fiskur með roði frá Samherja
  • Salt
  • 3-4 hvítlauksgeirar
  • 1 msk soja sósa
  • 1 msk hunang

Mangósalsa

  • 2 lítil eða 1 stórt mangó
  • 3 tómatar
  • 1/2 rauðlaukur
  • 15 g kóríander
  • safi úr 1 lime
  • salt

Hrísgrjón

Aðferð:

  1. Sjóðið hrísgrjón.
  2. Skerið laxinn í bita og saltið.
  3. Rífiið hvítlauksgeirana og setjið á pönnu með olíu, steikið létt. Bætið soja sósu og hunangi á pönnuna og leggið laxinn á pönnuna, roðið upp. Snúið honnum við þegar falleg húð hefur myndast á laxinn.
  4. Útbúið mangósalsa með því að skera mangó, tómata og rauðlauka smátt niður og blanda saman í skál. Kreystið lime safa yfir og saltið, blandið öllu vel saman.
  5. Setjið hrísgrjón á disk, leggið laxinn ofan á og setjið vel af mangósalsa yfir.

lax í hunangssoja marineringu með mangósalsa

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5