Ljúffengt rjómaosta kartöflugratín
Þetta rjómaosta kartöflugratín er ótrúlega ljúffengt, djúsí og algjör veisluréttur sem hentar með nánast hvaða mat sem er. Þunnt sneiddar kartöflur raðast fallega í formið, umluktar silkimjúkri rjóma- og rjómaostasósu sem bakast saman þar til allt verður mjúkt, bragðmikið og dásamlega djúsí.
Philadelphia rjómaosturinn með kryddjurtunum gerir það að verkum að þetta kartöflugratín er ótrúlega einfalt og inniheldur ótrúlega fá innihaldsefni. Þú þarft bara að kaupa 4 hluti út í búð ef þú átt til salt og pipar heima.
Maður byrjar á því að skera kartöflurnar niður með mandolín og raðar í formið. Svo bræðir maður saman rjómaost og rjóma í potti og hellir yfir formið. Ef þú vilt vinna þér í haginn þá er hægt að geyma gratínið svoleiðis inn í ísskáp með plastfilmu yfir, í nokkra daga.
Þetta er réttur sem hentar jafnt á jólaborðið, í matarboð eða bara á góða helgi þegar þú vilt búa til eitthvað sem allir elska.







Ljúffengt rjómaosta kartöflugratín
- 700 g kartöflur (frekar stórar, t.d. gullauga)
- 200 g Philadelphia rjómaostur með kryddjurtum
- 300 ml rjómi
- Salt og pipar
- 100 g rifinn ostur
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 180°C, undir og yfir hita.
- Skolið kartöflurnar vel og skerið þær þunnt niður með mandolín. Raðið í eldfastmót upp á rönd.
- Setjið rjómaost og rjóma í pott og bræðið saman, kryddið með salt og pipar. Hellið yfir kartöflurnar í eldfasta mótið. Leggið álpappír yfir.
- Bakið inn í ofninum í u.þ.b. 50 mín. Takið út úr ofninum og dreifið rifna ostinum yfir, bakið áfram í 20 mín eða þar til osturinn er byrjaður að gyllast. Gott að stilla á grillið seinustu 3-5 mínúturnar til að extra stökkt yfirbörð á kartöflurnar.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar












