Linda Ben

Mini pavlovur með jarðaberjum og karamellusósu

Recipe by
1 klst
Cook: Unnið í samstarfi við Nóa Síríus

Mini pavlovur með jarðaberjum og karamellusósu

Mini pavlovur eru alltaf klassík. Léttar, stökkar að utan og mjúkar og „marshmallow“ kenndar að innan. Hér tek ég þær á næsta level með ferskum jarðaberjum og ómótstæðilegri karamellusósu.

Pavlovurnar eru bakaðar hægt þannig að þær halda fallegri lögun og fá þessa fullkomnu áferð sem bráðnar nánast í munni. Ofan á fer léttur þeyttur rjómi og fersk, safarík jarðaber sem gefa bæði sætleika og ferskleika.

Svo er karamellusósa úr Töggunum frá Nóa Síríus aðal málið. Hún er silkimjúk, djúp og með þessu klassíska karamellubragði sem passar fullkomlega með pavlovunum. Afskaplega einföld að gera.

Þetta eru svona litlir eftirréttir sem líta út fyrir að vera flóknir en eru í raun afskaplega einfaldir. Fullkomnir litlir sætir bitar í veislur, fermingar, saumaklúbb eða þegar þú vilt bera fram eitthvað fallegt sem allir elska 🍓✨

Mini pavlovur með jarðaberjum og karamellusósu

Mini pavlovur með jarðaberjum og karamellusósu

Mini pavlovur með jarðaberjum og karamellusósu

Mini pavlovur með jarðaberjum og karamellusósu

Mini pavlovur með jarðaberjum og karamellusósu

Mini pavlovur með jarðaberjum og karamellusósu

Mini pavlovur með jarðaberjum og karamellusósu

Mini pavlovur með jarðaberjum og karamellusósu

  • 6 eggjahvítur
  • 3,5 dl sykur
  • 2 tsk kornsterkja (maizenamjöl)
  • 1/8 tsk cream of tartar
  • 2 tsk vanilludropar
  • 2 tsk hvítt borðedik

Karamellusósa

  • 120 g Töggur rjómakaramellur frá Nóa Síríus
  • 1 dl rjómi

Jarðaber

Aðferð:

  1. Stillið ofninn á 100ºC, undir og yfir hita.
  2. Notið fullkomlega hreina hrærivéla skál, setjið eggjahvíturnar í skálina ásamt cream of tartar og notið þeytarann.
  3. Blandið kornsterkjunni út í sykurinn, hrærið saman.
  4. Þeytið eggjahvíturnar mjög rólega fyrst, setjið 1 msk af sykri út í eggjahvíturnar í einu á ca ½ mín fresti, aukið hraðann hægt og rólega eftir því sem þið setjið meiri sykur út í (þolinmæðisverk en þó þess virði).
  5. Blandið saman vanilludropum og hvíta borðedikinu, hellið blöndunni út í þegar eggjahvíturnar hafa náð stífum toppum og hrærið saman við í ½ mín lengur.
  6. Setjið smjörpappír á ofnplötu, setjið deigið í sprautupoka með meðalstórum stjörnustút og sprautið litla hringi, u.þ.b. 6-7 cm breiða hringi.
  7. Bakið í u.þ.b. 40-50 mín.
  8. Bræðið saman karamellur og rjóma í potti, hrærið þar til samlagað. Leyfið sósunni að kólna að stofuhita.
  9. Þeytið rjómann og sprautið á kökurnar með sama sprautustút. Skerið jarðaberin í 4 hluta og raðið 2 bitum af jarðaberjum ofan á hverja köku. Setjið karamellusósu yfir.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Fylgstu með á Patreon!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

Mini pavlovur með jarðaberjum og karamellusósu

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5