Nóa Kropps popp – poppað í potti 🍿
Það er fátt sem toppar popp sem er poppað í potti. það er einfaldlega extra gott þannig.
Mér finnst best að nota bragðlitla olíu, hún er auðveld í notkun og hefur ekki áhrif á bragðið á poppinu. Ég set botnfylli af olíu í pottinn og eina poppbaun með. Lokið fer á pottinn og hitinn er stilltur á meðalháan.
Þegar maður heyrir að fyrsta baunin hefur poppast, hellir maður öllum poppbaununum í pottinn þannig að þær þeki botninn. Hristið pottinn aðeins svo baunirnar fari allar vel í olíuna, lokið pottinum aftur og lækkið hitann aðeins.
Eftir smástund byrja baunirnar að poppast. Mikilvægt er að hafa lokið á pottinum á meðan poppið er að poppast og taka það ekki af fyrr en það líða um 4–5 sekúndur á milli poppunar. Að lokum setur maður örlítið salt yfir poppið.
Það er líka ótrúlega gott að poppa í smjöri, en þá þarf að passa hitann sérstaklega vel svo smjörið brenni ekki.
Svo kemur mitt uppáhald. Það er sturlað gott að setja Nóa Kropp yfir heitt poppið, súkkulaðið bráðnar aðeins og gerir poppið algjörlega ómótstæðilegt. Ég mæli svo mikið með að prófa þetta, hvort sem þið eruð að poppa heima eða fara í bíó. Ég geri þetta nánast alltaf og hef gert í mörg ár, svo það var vel viðeigandi að sýna ykkur þessa dásamlegu samsetningu 🍫🍿



Nóa Kropps popp – Popp poppað í potti
- Bragðlítil olía t.d. sólblómaolía í því magni sem þarf til að þekja botn á stórum potti
- Poppbaunir í því magni sem þarf til að þekja botn á stórum potti
- Salt
- Nóa Kropp
Aðferð:
- Setjið olíu í pott þannig að olían þekji botninn á pottinum, setjið eina poppbaun í pottinn og stillið á meðal háan hita, setjið lokið á pottinn.
- Þegar poppbaunin í pottinum hefur poppast helliði þá meira af poppbaunum í pottinn þannig að baunirnar þekji botninn á pottinum, lækkið undir pottinum, setjið lokið á og bíðið þar til flest allar baunirnar hafa poppast, þið heyrið það á hljóðinu en þá fer að líða lengra á milli þess sem baunirnar poppast.
- Setjið vel af salti yfir og hellið poppinu í stóra skál.
- Hellið Nóa Kroppi yfir á meðan poppið er ennþá heitt svo Nóa Kroppið bráðni svolítið.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar







