Linda Ben

Ómótstæðileg rjómaosta og ólífu ídýfa

Recipe by
5 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Innnes

Það þarf ekki flókna uppskrift til að búa til eitthvað algjörlega ómótstæðilegt. Þessi rjómaosta- og ólífu ídýfa er fullkomið dæmi um það hvernig fá, góð hráefni geta orðið að rétt sem lætur öllum langa í meira og biðja um uppskriftina.

Mjúkur Philadelphia rjómaostur, saltar ólífur, ristaðar möndlur og ferskur sítrónubörkur mynda fallegt jafnvægi á milli kremkennds, stökks og fersks. Smá sletta af hvítlauksolíu frá Filippo Berio bindur allt saman og gefur réttinum mildan miðjarðarhafsblæ.

Þetta er svona réttur sem hentar jafnt sem forréttur í matarboð, vinkonukvöld, tapasborð eða einfaldlega þegar manni langar í eitthvað extra gott með nýbökuðu baguette. Og það besta? Hann tekur aðeins nokkrar mínútur að útbúa, en lítur út eins og þú hafir lagt í mikla vinnu.

Algjörlega frábær réttur sem þú munt vilja gera aftur og aftur.

Ómótstæðileg rjómaosta og ólífu ídýfa

Ómótstæðileg rjómaosta og ólífu ídýfa

Ómótstæðileg rjómaosta og ólífu ídýfa

Ómótstæðileg rjómaosta og ólífu ídýfa

Ómótstæðileg rjómaosta og ólífu ídýfa

  • 200 g Philadelphia rjómaostur
  • 200 g ólífur án steins
  • 30 g möndlur, saxaðar
  • Sítrónubörkur
  • Steinselja
  • Filippo Berio hvítlauksolía
  • Baguette

Aðferð:

  1. Saxið möndlurnar og létt ristið þær á pönnu þar til þær eru aðeins byrjaðar að gyllast og ilma vel.
  2. Setjið rjómaostinn á fallegan disk, smyrjið honum fallega á diskinn.
  3. Dreifið ristuðu möndlunum yfir rjómaostinn og því næst ólífunum. Rífið sítrónubörk yfir og dreifið saxaðari steinseilju sömuleiðis yfir.
  4. Hellið svolítið af hvítlauksolíu yfir allt saman og njótið með nýbökuðu baguette.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Fylgstu með á Patreon!

Njótið vel!

Ykkar

 

Ómótstæðileg rjómaosta og ólífu ídýfa

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5