Ómótstæðileg súkkulaðibomba með karamellusúkkulaðimús
Ef þú ert að leita að eftirrétti sem fær fólk til að stoppa, horfa og segja „vá!“ þá er þetta hann.
Ómótstæðileg súkkulaðibomba með karamellusúkkulaðimús er algjör showstopper! Djúpur súkkulaðikökubotn, silkimjúk karamellusúkkulaðimús, stökkur dökkur súkkulaðihjúpur og karamellukurl sem gefur fullkomið „crunch“.
Þetta er svona eftirréttur sem lítur út eins og úr fínasta veitingahúsi en er samt vel hægt að gera heima með smá þolinmæði og góðum hráefnum. Þegar þú skerð í kúluna með skeiðinni kemur mjúk og loftkennd músin í ljós, og það moment eitt og sér er nóg til að heilla alla við borðið.
Samspilið á milli sætleika karamellunnar, djúps súkkulaðibragðs og stökks hjúps gerir þetta að eftirrétti sem er bæði ríkulegur og fullkomlega jafnvægið. Þetta er ekki bara eftirréttur, þetta er upplifun.
Fullkomin í matarboð, sérstök tilefni eða þegar þú vilt gera eitthvað sem fólk mun muna eftir.






Ómótstæðileg súkkulaðibomba með karamellusúkkulaðimús
Súkkulaðikökubotn
- Ljúfffeng súkkulaðikaka Lindu Ben – þurrefnablanda
- 3 egg
- 1 ½ dl bragðlítil olía eða brætt smjör
- 1 dl vatn
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
- Setjið þurrefnablönduna í skál ásamt eggjum, olíu/smjöri og vatni, hrærið saman í 3-4 mín þar til áferðin verður fallega glansandi og slétt.
- Hellið deiginu í smurt 30×40 cm kökuform (eða sambærilega stórt) og bakið í 20-25 mín eða þar til bökuð í gegn. Kælið kökuna.
Karamellusúkkulaðimús
- 200 g Síríus suðusúkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti
- 400 g rjómi
Aðferð:
- Bræðið saman súkkulaði og 1 dl rjóma, kælið að stofuhita.
- Þeytið rjómann og blandið saman við kældu súkkulaðibráðina varlega með sleikju.
Dökkur súkkulaðihjúpur
- 200 g 70% Síríus suðusúkkulaði
- Litapúður Sprey – Bronslitað
Aðferð:
- Bræðið helminginn af súkkulaðinu yfir vatsnbaði.
- Setjið það sem eftir er af súkkulaðinu ofan í brædda súkkulaðið og látið það bráðna saman við mjög hægt og rólega. Þið gætuð þurft að setja það aftur ofan í vatnsbaðið í pínu stund til að allt súkkulaðið bráðni, en passið að súkkulaðið hitni ekki of mikið, því þá verður það ekki stökkt þegar það stirðnar aftur.
Karamellukurls botn
- 100 g Síríus suðusúkkulaði
- 150 g Síríus karamellukurl
Samsetning
- Byrjið á að baka kökuna samkvæmt leiðbeiningum hér fyrir ofan. Kælið kökuna. Notið glas eða annað til að skera út hringi sem eru jafn stórir og kúlurnar á sílíkon mótinu
- Takið kúlulaga sílíkon form og setjið súkkulaðið í botninn á kúlunum, hallið forminu á alla kanta svo súkkulaðið stirðni jafnt um allt formið, hér getur líka verið gott að nota skeið eða pensil til að dreifa súkkulaðinu. Leyfið súkkulaðinu að stirðna á meðan þið gerið súkkulaðimúsina.
- Útbúið karamellusúkkulaðimúsina samkvæmt leiðbeningum hér fyrir ofan. Setjið mús ofan í hverja kúlu en ekki fylla alveg, skiljið c.a. ½ cm eftir.
- Setjið útskornu kökurnar ofan á karamellusúkkulaðimúsina, setjið í frysti í 3-4 klst.
- Bræðið suðusúkkulaðið yfir vatnsbaði og setjið í skál.
- Setjið karamellukurlið í skál
- Takið kökurnar úut úr frysti og varlega úr sílíkonforminu. Setjið brætt súkkulaði á beru hliðarnar á kökubotninum og dýfið svo ofan í karamellukurls skálina svo hliðarnar þekjist karamellukurli.
- Spreyjið kúlurnar með bronslituðu litarpúðri.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar












