Linda Ben

Páskaeggja rjómasúkkulaðiostakaka

Recipe by
15 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Nóa Síríus | Servings: 8 egg

Ef þú vilt gera eitthvað extra skemmtilegt og öðruvísi, þá er þessi páskaeggja súkkulaði ostakaka algjör showstopper ✨

Í stað þess að bera fram hefðbundna ostaköku fylli ég páskaegg nr 1 og geri úr þeim einstaklega fallega og sparilega eftirrétti. Skeljarnar eru Síríus Suðusúkkulaðieggjum nr. 1 sem gefa djúpt og gott súkkulaðibragð sem passar ótrúlega vel með silkimjúkri rjómasúkkulaðiostaköku.

Fyllingin er létt og loftmikil, rjómaostur og brætt rjómasúkkulaði blandað saman við þeyttan rjóma. Saman gerir þetta allt áferðina silkimjúka og ótrúlega næs. Ofan á set ég mulning úr súkkulaðikexi fyrir smá crunch sem brýtur upp mýktina.

Þetta er fullkominn páskaeftirréttur, gullfallegur á páskaborðinu og skemmtileg leið til að nýta páskaegg á annan hátt. Hægt er að útbúa þau með fyrirvara og geyma í kæli þar til bera á fram, sem gerir þetta að einfaldri en áhrifaríkri páskahugmynd 🐣✨

Páskaeggja súkkulaði ostakaka

Páskaeggja súkkulaði ostakaka

Páskaeggja súkkulaði ostakaka

Páskaeggja súkkulaði ostakaka

Páskaeggja súkkulaði ostakaka

Páskaeggja súkkulaði ostakaka

Páskaeggja súkkulaði ostakaka

  • 8 stk Síríus Suðusúkkulaðiegg nr 1
  • 200 g rjómasúkkulaði
  • 200 g rjómaostur
  • 400 ml rjómi
  • Súkkulaðikex til að mylja ofan á

Aðferð:

  1. Bræðið rjómasúkkulaði yfir vatnsbaði og leyfið því svo aðeins að kólna.
  2. Takið páskaeggin úr álumbúðunum og setjið á skurðarbretti.
  3. Hitið mjög beittan hníf undir heitu vatni þar til hnífurinn er orðinn mjög heitur. Þurrkið vatnið af hnífnum og skerið páskaeggið mjög varlega í sundur, leyfið heita hnífnum að bræða eggið rólega í staðinn fyrir að nota kraft því annars á eggið í hættu á að brotna í mola.
  4. Setjið rjómaost og brædda rjómasúkkulaðið í skál og blandið saman.
  5. Þeytið rjóma og blandið varlega saman við rjómaostasúkkulaðiblönduna með sleikju. Það er þægilegt að setja ostakökudeigið í sprautupoka hér en ekki nauðsynlegt.
  6. Sprautið eða notið skeið til að fylla páskaeggjaskeljarnar af ostakökunni. Skreytið með muldu súkkulaðikexi.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Fylgstu með á Patreon!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Páskaeggja súkkulaði ostakaka

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5