Linda Ben

Perluhnappa ísterta

Recipe by
1 klst og 15 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Nóa Síríus

Perluhnappa ísterta ístertan er alveg einstaklega góð! Hún er afar einföld að útbúa og kjörið að smella í þegar eftirrétturinn þarf að vera fljótlegur, einfaldur en fyrst og fremst bragðgóður. Maður byrjar á því að brjóta niður tilbúinn marengsbotn og setja í botninn á formi. Ég er alltaf hrifin af því að setja hringinn af smelluformi á kökudisk sem passar í fyrsti, en það er líka hægt að nota fallegt eldfast form, skál eða hvað sem þér langar að nota.

Svo setur maður mjúkann ís yfir marengsinn og raðar perluhnöppum, súkkulaðiperlum og karamellukurli ofan í ísinn. Svo setur maður meiri ís yfir og meira af karamellukurlinu. Því næst smellir maður ísnum aftur í frysti þar til hann hefur harðnað aftur, u.þ.b. 1 klst en má líka vera lengur. Svo tekur maður ísinn úr frystinum og fjarlægir smelluformshinginn. Þeytir rjóma, smellir honum ofan á og skreytir með meira af perluhnöppum og súkkulaðiperlum.

Perluhnappa ísterta

Perluhnappa ísterta

Perluhnappa ísterta

Perluhnappa ísterta

Perluhnappa ísterta

  • Tilbúinn marengsbotn
  • 1 líter vanillu rjómaís
  • 125 g Síríus perlu hnappar rjómasúkkulaði
  • 150 g Síríus súkkulaðiperlur
  • 75 g Síríus karamellukurl
  • 250 ml rjómi

Aðferð:

  1. Setjið smelluhringform án botnsins á kökudisk, athugið hvort diskurinn komist ekki örugglega fyrir í frystinum.
  2. Brjótið marengsbotninn niður og setjið á kökudiskinn með smelluformshringnum.
  3. Setjið helminginn af vanilluísinum (sem þarf að vera svolítið mjúkur) ofan á marengsinn og pressið hann niður. Raðið helmingnum af perluhnappa súkkulaðinu ofan í ísinn ásamt helmingnum af karamellukurlinu og helmingnum af súkkulaðiperlunum. Setjið það sem eftir er af ísnum ofan á og toppið með því sem eftir er af karamellukurlinu
  4. Smellið öllu í frysti þar til ísinn hefur náð að harðna aftur.
  5. Takið úr frysti og fjarlægið smelluformshringinn, þeytið rjóma og setjið ofan á ístertuna. Skreytið með því sem eftir er af perluhnöppunum og súkkulaðiperlunum.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5