Pinsa er ekki bara annað orð yfir pizzu, hún er allt öðruvísi upplifun. Deigið er léttara og loftkenndara þar sem notað er blanda af hveiti, spelti og hrísgrjónahveiti og það fær að kaldhefast í 24–48 klst. Útkoman er stökk að utan, mjúk og næstum skýja-lík að innan og mun auðmeltanlegri en hefðbundin pizzadeig. Hún er líka oft ílangari í laginu og aðeins rustic í útliti, sem ég elska.
Hér para ég hana með pinsa sósu frá Mutti, sem er alvöru ítalskt gæðamerki og fæst í Krónunni. Sósan er aðeins grófari (meira chunky) en hefðbundin pizzasósa, sem gefur meiri áferð og ferskara tómatbragð, fullkomið þegar maður vill leyfa hráefninu að njóta sín.
Svo er það stjarnan: svarta pepperóníið frá SS. Það fær djúpa svarta litinn frá smokkfiskbleki sem gefur örlítið meira umami og aðeins meiri karakter en klassískt pepperóní, samt alls ekki of sterkt. Bragðið er kunnuglegt en með smá „wow“ twisti.
Með ferskum mozzarella, rauðlauk, grænum ólífum, smá chilli, basilíku og góðri hvítlauksolíu nærðu pizzakvöldinu á næsta level.







Pinsa með svörtu pepperóní, ferskum mozzarella og basilíku
Pinsa botn
- 500 g ítalskt hveiti
- 50 g spelt hveiti
- 40 g hrísgrjóna hveiti
- 460 gg ml ískalt vatn
- 2,5 g þurrger
- 10 g salt
- 5 ml extra virgin ólífu olía
Aðferð:
- Setjið hveitin saman í hrærivélaskál ásamt þurrgerinu og blandið því saman.
- Setjið deighnoðarann á hrærivélina og bætið vatninu hægt að rólega saman við með hrærivélina í gangi, bætið einnig ólífu olíu og salti út í. Hnoðið saman í u.þ.b. 10-12 mín. Látið deigið hefast í 1 klst við stofuhita með hreinu viskustykki yfir. Togið deigið til og brjótið upp á það nokkrum sinnum.
- Setjið deigið í skál sem passar í ísskápinn og lokið skálinni með plastfilmu. Látið deigið kaldhefast inn í ísskáp í 24-48 klst.
Álegg
- Pinsa sósa frá Mutti
- Ferskur mozzarella ostur
- Heitt og svart pepperóni frá SS
- Grænar ólífur
- Rauðlaukur
- Rauður chillí (má sleppa)
- Fersk basilíka
- Hvítlauksolía
Aðferð:
- Eftir að deigið hefur hefast í 24-48 klst í ísskáp, takið það þá út úr ísskápnum.
- Kveikið á ofninum og stillið á 240°C, undir og yfir hita.
- Skiptið deiginu í 3 jafna hluta og leyfið því að standa í 20-30 mín með hreint viskustykki yfir.
- Skerið rauðlauk og chillí í sneiðar
- Togið og fletjið pizzadeigið til svo það verði u.þ.b. 20×35 cm stórt.
- Setjið vel af pinsa sósu yfir.
- Skerið mozzarella ostinn í sneiðar og dreifið honum yfir ásamt svörtu pepperóní, grænum ólífum, rauðlauk og chillí.
- Bakið inn í ofni í u.þ.b. 12 mín eða þar til osturinn er alveg bráðnaður og botninn aðeins byrjaður að gyllast.
- Skerið í sneiðar, berið fram með ferskri basilíku og hvítlauksolíu.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar












