Þessar piparköku jógúrtkökur með hvítu súkkulaði eru bæði einfaldar, fallegar og ótrúlega jólalegar – fullkominn eftirréttur þegar þú vilt gera eitthvað virkilega létt og ljúffengt sem er tilbúið á örfáum mínútum.
Ég er búin að kaupa ég veit ekki hvað mikið af piparkökujógúrtinu frá Örnu frá því að það kom í búðir. Dóttir mín er með algjört æði fyrir þessu jógúrti og við hin í fjölskyldunni elskum það líka. Oftast borðum við það með granóla en það er líka fullkomið til að nota í jólalega eftirrétti.
Silkimjúkt jólajógúrt með piparkökubragði blandast saman við brætt hvítt súkkulaði og þeyttan rjóma og myndar dásamlega rjómakennda jógúrtmús.
Klessupiparkökurnar gefa þetta stökka element sem gerir eftirréttinn ómótstæðilegan. Smákaka, trönuber og rósmarín setja hátíðlegt punktinn yfir i-ið.
Einfaldara og skemmtilegra verður þetta ekki.





Piparköku jógúrtkökur með hvitu súkkulaði
- 170 g Jóla jógúrt með piparkökubragði frá Örnu Mjólkurvörum
- 300 ml rjómi
- 150 g hvítt súkkulaði
- Klessupiparkökur Lindu Ben
- Trönuber og rósmarín sem skraut
Aðferð:
- Bræðið hvíta súkkulaðið og kælið svolítið
- Setjið jólajógúrtið í skál ásamt kælda brædda hvíta súkkulaðinu, blandið saman.
- Þeytið rjómann og blandið því saman við jógúrtblönduna.
- Brjótið Klessupiparkökur í 4 glös og skiptið jógúrt blöndunni á milli.
- Skreytið með hálfri klessupiparköku, trönuberjum og rósmarín.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar









