Linda Ben

Pönnukökur með bláberja og sítrónu rjómaosti

Recipe by
20 mín
Cook: Unnið í samstarfi við ÍSAM

Það er eitthvað sérstaklega gott við nýbakaðar pönnukökur með ferskum berjum, einfalt, kósý og alltaf vinsælt. Hér nota ég að sjálfsögðu Ljúffengu pönnuköku þurrefnablönduna frá Linda Ben, sem gerir það fljótlegt og auðvelt að baka mjúkar og fallegar þykkar pönnukökur sem verða gullnar að utan og mjúkar að innan.

Ofan á pönnukökurnar set ég silkimjúkan bláberja og sítrónu rjómaost sem er bæði ferskur og létt sætur. Bláberjasultan gefur milda berjasætu á meðan sítrónubörkurinn kemur með ferskan sítruskeim sem lyftir bragðinu og gerir þetta combo ótrúlega gott.

Með ferskum bláberjum ofan á verður þetta fullkominn morgunverður eða brunchréttur. Fallegur á disknum, einfaldur í gerð og svona réttur sem klárast alltaf.

Bláberja og sítrónu rjómaostinn getur þú svo átt inn í ísskáp ef það verður afgangur, hann er alveg ótrúlega góður á allt, hvort sem það er ristað brauð, kex eða eitthvað allt annað.

Pönnukökur með bláberjarjómaosti

Pönnukökur með bláberjarjómaosti

Pönnukökur með bláberjarjómaosti

Pönnukökur með bláberjarjómaosti

Pönnukökur með bláberjarjómaosti

Pönnukökur með bláberja og sítrónu rjómaosti

  • Ljúffengar pönnukökur – þurrefnablanda Lindu Ben
  • 1 egg
  • 3 dl mjólk
  • 60 g bræddu smjör

Bláberja og sítrónu rjómaostur

  • 200 g rjómaostur
  • 2 msk St. Dalfour bláberjasulta
  • Börkur af 1 sítrónu
  • Fersk bláber

Aðferð:

  1. Setjið þurrefnablönduna í skál ásamt eggi, mjók og bræddu smjöri. Hrærið öllu saman og steikið svo u.þ.b. 1 dl af deigi á smurðri pönnu á báðum hliðum.
  2. Hrærið saman rjómaost, bláberjasultu og börk af sítrónu, smyrjið ofan á pönnukökurnar og setjið svo fersk bláber yfir.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Fylgstu með á Patreon!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Pönnukökur með bláberjarjómaosti

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5