Það er ástæða fyrir því að Pornstar Margarita er orðin svona vinsæl, hún er fersk, bragðast dásamlega með fullkomið jafnvægi milli sætu og sýru.
Passoa gefur henni suðrænt passionfruit bragð, lime safinn heldur henni ferskri og Triple Sec dregur fram sítrusnóturnar sem passa svo vel með góðu tequila. Hér nota ég Los Tres Tonos sem er mjúkt og hreint í bragði og leyfir ávaxtakeimnum að njóta sín.
Sykurbrúnin setur svo punktinn yfir i-ið. smá sæta við fyrsta sopa sem mætir fersku lime og djúpu tequila kicki. Ég átti þurrkuð æt blóm hér heima sem ég muldi ofan í sykurinn til að gefa litnum auka lit. Þetta er svona kokteill sem er mjög elegant í fallegu glasi🍸
Fullkominn fyrir saumaklúbbinn, matarboðið eða þegar þú vilt gera föstudagskvöldið aðeins meira spennandi ✨


Pornstar margarita kokteill
- 15 ml Passoa
- 50 ml Los tres Tonos tequila
- 15 ml Bols triple sec
- 20 ml lime safi
- 1 msk sykur
Aðferð:
- Setjið klaka í kokteilhristara ásamt Passoa, tequila, triple sec og lime safa, hrisstið allt vel saman.
- Setjið lime safa á glasbrúnina og sykur á lítinn disk. Setjið glasið ofan í diskinn með sykrinum og svo sykurinn festist á glasinu.
- Fyllið glasið af klökum, setjið sigri á kokteilhristarann og hellið drykknum í glasið.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar






