Þessar pralín saltkararmellufylltu smákökur eru svo guðdómlega góðar. Saltkaramellan lekur út í deigið og gerir það klístrað og algjörlega ómótstæðilegt!
Karamellu pralín fylltar smákökur
- 200 g smjör
- 100 sykur
- 150 g púðursykur
- 1 egg
- 1 eggjarauða
- 1 msk vanilludropar
- 1 tsk matarsódi
- 250 g hveiti
- 150 g Síríus pralín með saltkaramellufyllingu
- 150 g Síríus lakkrískurl
Aðferð:
- Setjið smjörið í skál ásamt sýkri og púðursykri í skál og þeytið þar til létt og ljóst.
- Bætið saman við egginu og eggjarauðunni og þeytið.
- Bætið saman við vanilludropunum.
- Blandið saman matarsóda of hveiti og bætið út í, hrærið aðeins þar til blandað.
- Skerið Síríus pralín súkkulaðið niður og bætið út í deigið ásamt lakkrískurli
- Setjið deigið loftþétt ílát og kælið í 1 klst eða yfir nótt inn í ísskáp.
- Kveikið á ofninum og stillið á 175°, undir og yfir hita.
- Búið til 30 g kúlur úr deiginu og raðið þeim á smjörpappírsklædda ofnskúffu með góðu millibili og bakið í 11 mín. Eftir 11 mín eiga endarnir að vera byrjaðir að brúnast en miðjan er ennþá vel mjúk. Takið þá út úr ofninum og k ælið kökurnar áður en þær eru borðaðar.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar
Category: