Próteinríkar og fljótlegar grískt jógúrt beyglur
Þessar beyglur eru algjör snilld – próteinríkar, djúsí og tilbúnar á augabragði!
Þær eru bakaðar úr gríska jógúrtinu frá Örnu Mjókurvörum sem er núna komið í 1 kg umbúðum! Ég alveg elska nýju umbúðirnnar þar sem við borðum mikið af gríska jógúrtinu og ég slepp þá við að vera kaupa margar dollur, umhverfisvænna og auðveldar lífið helling.
Gríska jógúrtið gerir beyglurnar bæði hollari og þéttari, en þær eru samt á sama tíma léttar og mjúkar. Fullkomnar í morgunmat, nesti eða helgarbröns – og það besta er að þær eru gerðar úr aðeins örfáum hráefnum. Það tekur líka enga stund að gera þær, engin hefunartími eða neitt þannig, bara hræra saman og henda inn í ofn.
Prófaðu að toppa þær með rjómaosti og laxi eða smjöri, osti og jafnvel smá sultu – þær passa með öllu.
Próteinríkar og fljótlegar grískt jógúrt beyglur
- 400 g hveiti
- 4 tsk lyftiduft
- 1 tsk salt
- 500 ml hrein grísk jógúrt frá Örnu Mjólkurvörum
- 1 egg (til að pensla á beyglur)
- Sesamfræ (til að setja ofan á beyglur, má sleppa eða skipta út fyrir annað)
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfirhita.
- Setjið hveiti, lyftiduft og salt í skál, hrærið saman.
- Setjið gríska jógúrtið út í og blandið saman. Ef deigið er mjög blautt þá megiði setja örlítið meira af hveiti.
- Skiptið deiginu í 8 jafna hluta, rúllið hverjum hluta í kúlu, gerið gat í miðjuna og togið deigið út svo það verði í laginu eins og beygla. Leggið á smjörpappírsklædda ofnplötu, 4 beyglur á hverja plötu þar sem þær stækka mikið í ofninum.
- Hrærið saman egg í skál og penslið á beyglurnar, dreifið sesamfræjum yfir.
- Bakið í 22 – 25 mín eða þar til þær eru orðnar gullibrúnar.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar