Það sniðuga við Nutribullet blandarann er að maður getur gert allt tilbúið í drykkinn löngu áður en maður ákveður að blanda hann. Það er að segja, raðar öllu í glasið til dæmis um kvöldið, skrúfað hnífnum á en hann virkar eins og lok, geymt inn í ísskáp yfir nótt og blandað svo drykkinn um morguninn. Þannig næ ég að minnsta kosti að spara mér hellings tíma á morgnanna.
Það að setja OTA Solgryn hafra í drykkinn gerir hann trefjaríkari og orkumeiri í leiðinni, þannig næ ég að halda mér saddri lengur. OTA Solgryn hafranir eru skráargats merktir og því sérlega hollur og góður valkostur.
Próteinríkur grænn hafra smoothie:
- 2 dl frosið mangó
- 1 skeið vanillu prótein
- ¾ dl hafrar
- 2 lúkur ferskt spínat
- 1 lúka möndlur
- 150 ml jógúrt með kókosbragði
- Vatn að MAX línu (á við Nutribullet glös) til að þynna
Aðferð:
- Setjið öll innihaldsefni í Nutribullet glas (eða annan blandara) og blandið saman þar til úr verður drykkur.
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben
Category: