Alveg dásamlega góð rauðlaukssulta sem er alveg frábært meðlæti með fjölmörgum mat. Alveg dásamlega góð með grilluðum hamborgurum, andabringum, hreindýrasteikinni eða hamborgarhryggnum.
Rauðlaukssulta (Sultaður rauðlaukur)
- 2 rauðlaukar
- ½ dl balsamic edik
- 1 hvítlauksgeiri
- 2 msk hunang
- 1 msk olía
- 1 msk sykur
- Svolítill pipar
Aðferð:
- Skerið rauðlaukinn niður í þunnar sneiðar, hér er þægilegast að nota mandolín.
- Setjið í pott ásamt öllum öðrum innihaldsefnum og leyfið að malla rólega í u.þ.b. 45 mín til 1 klst eða þar til áferðin er orðin sultukennd, hrærið í reglulega.
- Best er að setja sultuna í alveg tandurhreina krukku á meðan hún er heit og loka krukkunni vel, þannig geymist hún vel og lengi.
Category:



