Reykt laxarúlla
Þessi reykta laxarúlla er fullkomið dæmi um rétt sem er bæði fallegur, ferskur og ótrúlega einfaldur að útbúa. Mjúkur rjómaostur, sæta mangóið, stökk agúrka og vorlaukur fá að njóta sín inni í þunnum sneiðum af tvíreyktum laxi.
Þetta er svona réttur sem lítur út eins og þú hafir lagt mikla vinnu í hann, en tekur í raun aðeins nokkrar mínútur að setja saman. Léttur, ferskur og með smá asískum áhrifum frá sojasósunni sem fullkomnar bragðið.
Fullkominn hvort sem í hádegismatin, pinnamatur í veislur, á brunch-borð eða þegar þú vilt bera fram eitthvað sem er bæði elegant og auðvelt






Reykt laxarúlla
- Tvíreyktur lax í sneiðum frá Hnýfill
- Sesamfræ
- Rjómaostur
- Mangó
- Agúrka
- Vorlaukur
- Soja sósa
Aðferð:
- Setjið plastfilmu á boðið og setjið sesamfræ á filmuna.
- Leggið laxasneiðar á filmuna, ofan á sesamfræin, svo flatarmálið sé u.þ.b. 15×25 cm.
- Smyrjið rjómaosti ofan á laxinn.
- Skerið mangó, agúrku og vorlauk í strimla og raðið ofan á rjómaostinn.
- Rúllið laxinum þétt upp og skerið í bita. Berið fram með sojasósu.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar











