Reyktur lax með rjómaosti og dilli
Einfaldara verður þetta ekki. Reyktur lax, rjómaostur, dill og smá granatepli fyrir ferskleika. Þetta er rétturinn sem allir elska og hverfur alltaf fyrst af borðinu.
Það eina sem þú þarft að gera er að búa til litlar rjómaostaskálar með skeið og raða laxbitunum ofan í. Rífa svo dill yfir, dreifa granateplum og bera fram með ljúffengu baguette.
Þetta er svo ótrúlega einfalt en lítur út fyrir að hafa tekið miklu meiri tíma. Ég geri þetta alltaf þegar ég þarf eitthvað fljótlegt, fallegt og bragðgott.





Reyktur lax með rjómaosti og dilli
- Rjómaostur (magn fer eftir stærð disks)
- Reyktur lax
- 15 g dill frá Vaxa
- Granateplakjarnar
- Sprettur frá Vaxa
- Baguette
Aðferð:
- Setjið rjómaost á bakhlið matskeiðar, þrístið rjómaostinum á diskinn þannig að það myndist svona skeiðarfar í rjómaostinn þannig að rjómaosturinn er svona eins og skál.
- Skerið reykta laxinn niður í sneiðar og svo í minni bita. Raðið einum laxabita ofan í hverja rjómaostaskál.
- Rífið dillið í minni bita og dreifið því yfir diskinn ásamt granateplakjörnum.
- Raðið sprettum í miðjuna á disknum
- Berið fram með baguette brauði.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar


Category:










