Mjúkur og mildur Philadelphia rjómaostur, sölt parmaskinka, stökkar pistasíuhnetur og heitt chili hunang skapa fullkomið jafnvægi á milli kremkennds, salts, sætu og smá hita.
Aðferðin er einföld en útkoman ótrúlega falleg, litlar „skeiðar“ af rjómaosti sem gera bakkann strax meira spennandi og auðvelt að grípa í. Alveg dásamlegt með nýbökuðu baguette brauði og ísköldu rósavínsglasi.
Þetta er svona réttur sem hentar jafnt í veislur, vinkonukvöld eða sem hluti af tapasborði og hverfur yfirleitt fyrst af borðinu.
Einfalt, fallegt og ómótstæðilega gott




Rjómaostabakki með parmaskinku og pistasíum
- Philadelphia rjómaostur
- Parmaskinka
- Pistasíuhnetur
- Chillí hunang
Aðferð:
- Notið bakhliðina á skeið til að setja rjómaostinn á bakkann, 1 msk í einu.
- Skerið parmaskinkuna niður og raðið skinkubita í hverja “rjómaostaskeiðarfar”.
- Saxið pistasíuhneturnar niður og raðið yfir bakkann ásamt heitu chillí hunangi.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar






