Linda Ben

Sítrónukaka með ljúffengu rjómaostakremi

Það er ekkert leyndarmál að ég elska að einfalda mér lífið, sérstaklega í eldhúsinu, án þess þó að fórna gæðum, bragði eða útliti. Þess vegna ákvað ég að breyta vanillukökumixinu mínu í ljúffenga sítrónuköku. Kremið ofan á er ljúffengur rjómaosta glassúr sem er algjörlega fullkominn ofan á þessa köku.

Ég bætti við einu auka eggi til að gera kökuna enn rakameiri og aðeins meira „dense“, skipti svo út hluta af vatninu fyrir sítrónusafa og setti vel af sítrónuberki í deigið. Útkoman er mjúk og safarík kaka með greinilegu sítrónubragði, nákvæmlega eins og góð sítrónukaka á að vera.

Ofan á fer svo silkimjúkur rjómaostaglassúr með sítrónuberki sem gefur kökunni milda sætu og fullkomið jafnvægi við ferska sítrónubragðið.

Þetta er svona kaka sem er bæði einföld og elegant, fullkomin í kaffiboð, saumaklúbb eða þegar mann langar í eitthvað létt og ferskt með kaffinu. Skreytt með sítrónusneiðum verður hún líka einstaklega falleg á kökuborðinu 🍋

Sítrónukaka með ljúffengu rjómaostakremi

Sítrónukaka með ljúffengu rjómaostakremi

Sítrónukaka með ljúffengu rjómaostakremi

Sítrónukaka með ljúffengu rjómaostakremi

Sítrónukaka með ljúffengu rjómaostakremi

Sítrónukaka með ljúffengu rjómaostakremi

Sítrónukaka með ljúffengu rjómaostakremi

Sítrónukaka með ljúffengum rjómaostaglassúr

  • Ljúffeng Vanillukaka Lindu Ben – þurrefnablanda
  • 4 egg
  • 1 1 /2 dl bragðlítil olía eða brætt smjör
  • 1/2 dl sítrónusafi
  • Börkur af 1 sítrónu
  • 1/2 dl vatn

Ljúffengur rjómaostaglassúr

  • 200 g Philadelphia rjómaostur
  • 200 g flórsykur
  • Börkur af 1 sítrónu
  • Sítróna skorin í sneiðar – sem skaut, má sleppa

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
  2. Setjið þurrefnablönduna í skál ásamt eggjum, olíu/smjöri, sítrónusafa og vatni. Hrærið vel saman og hellið í smurt hringform með gati í miðjunni sem er 26 cm í þvermál eða sambærilega stórt form. Bakið í u.þ.b. 20 mín eða þar til kakan er bökuð í gegn. Kælið kökuna.
  3. Blandið saman rjómaosti, flórsykri og sítrónuberki í skál, smyrjið kökuna með glassúrnum og skreytið með sítrónusneiðum.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Fylgstu með á Patreon!

Njótið vel!

Ykkar

 

Sítrónukaka með ljúffengu rjómaostakremi

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5