Sítrónupipars og hunangs Landlax
Það er fátt betra en réttur sem er bæði ótrúlega góður og tilbúinn á innan við 20 mínútum. Þessi sítrónupipars- og hunangs Landlax er mildur, safaríkur og fullkomlega jafnvægið á milli ferskleika og léttarar sætu. Sítrónan og dijon sinnepið gefa dýpt, hunangið mýkir bragðið og hvítlaukurinn lyftir öllu saman. En það sem gerir réttinn sannarlega sérstakan er gæðin á laxinum sjálfum.
Landlax er ræktaður í landeldi hjá Samherja þar sem lögð er áhersla á sjálfbærni, hreinleika og fulla stjórn á aðstæðum. Í stað hefðbundins sjókvíeldis er laxinn alinn á landi í lokuðu kerfi þar sem:
-
vatnið er hreinsað og endurnýtt með háþróaðri tækni
-
umhverfisáhrif eru lágmörkuð
-
engin sníkjudýr eða lús eru vandamál
-
engin sýklalyf eru notuð
Landeldi tryggir stöðugt, hreint og jafnt umhverfi sem skilar sér í ferskum, fallegum og bragðmiklum fiski með þéttu holdi og hreinu bragði. Fyrir okkur sem eldum heima þýðir það einfaldlega að hráefnið er í fyrsta gæðaflokki og þegar hráefnið er gott þarf ekki flókna matreiðslu.
Þessi uppskrift er fullkomin fyrir annasaman virkan dag, léttan helgarmat eða þegar þú vilt bera fram eitthvað sem lítur út og bragðast eins og meira en það er. Góður lax, nokkur hráefni og stuttur tími í ofni, það þarf ekki meira!







Sítrónupipars og hunangs landlax
- U.þ.b. 600 g Landlax – ferskur fiskur með roði
- Safi úr 1/2 sítrónu
- 5 hvítlauksgeirar
- 1 msk hunang
- 1 msk dijon sinnep
- 1 msk sítrónupipar
- Fersk steinselja (má sleppa)
- Ferskur chillí (má sleppa)
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita.
- Setjið landlaxinn í eldfastmót og þerrið hann með eldhúspappír.
- Kreystið sítrónusafa í skál og rífið hvítlauksgeirana út í. Bætið einnig hunangi, dijon sinnepi og sítrónupipar út í, hrærið öllu saman.
- Hellið yfir laxinn og bakið hann inn í ofni í 12-15 mín.
- Skerið steinselju og chillí smátt niður og dreifið yfir ef þið viljið.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar












