Smákökur með hvítu súkkulaði og jarðaberjum.
Þetta eru svo sumarlegar og góðar smákökur sem þú verður bara að smakka! Fullkomnar til að taka með í útileguna eða bara til að njóta heima til dæmis þegar sumarrigningin vökvar gróðurinn.
Ég keypti frostþurrkuð jarðaber í Hagkaup en það má klárlega stytta sér sporin og nota fersk jarðaber.
Smákökur með hvítu súkkulaði og jarðaberjum
- 200 g mjúkt smjör
- 150 g púðursykur
- 100 g sykur
- 2 egg
- 1 tsk vanilludropar
- 350 g hveiti
- 1 tsk matarsódi
- 1/2 tsk salt
- 150 g Síríus sælkerabaksturs hvítir súkkulaðidropar
- 100 g frostþurrkuð jarðaber eða fersk
Aðferð:
- Hrærið sanan smjör og sykur þar til létt og mjúkt.
- Bætið eggjunum út í einu í einu og hrærið vel á milli.
- Bætið vanilludropunum út í og hrærið.
- Blandið saman í aðra skál hveiti, matarsóda og salti, hellið svo öllu út í eggja/sykurblönduna og hrærið þar til samlagað.
- Bætið hvíta súkkulaðinu út í ásamt frostþurrkuðu jarðaberjunum (eða skerið fersku jarðaberin smátt niður og bætið þeim svo út í skálina), blandið saman.
- Setjið deigið í plastfilmu og geymið í ísskáp í a.m.k. 1 klst í kæli.
- Kveikið á ofnium og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
- Útbúið kúlur úr deiginu, u.þ.b. 1 msk eða 20-25 g hver kúla, raðið á smjörpappírsklædda ofnplötu, bakið í 11-12 mín (endarnir byrjaðir að brúnast en miðjan ennþá mjúk).
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar
Category: