Þetta er það sem ég fæ mér eftir ræktina þegar ég vil byggja upp vöðva, styðja við ónæmiskerfið og halda blóðsykrinum stöðugum. Próteinríkt, trefjaríkt og fullt af næringu.
Ristað súrdeigsbrauð með kotasælu, hágæða túnfiski og eggi gefur mér góða blöndu af próteini og hollri fitu – en það sem lyftir þessu á næsta level eru spretturnar frá VAXA 🌱
Spretturnar eru ræktaðar innandyra í Reykjavík við hreinar aðstæður, án varnarefna og eru afhentar ferskar á aðeins örfáum dögum. Sprettur eru sérstaklega ríkar af vítamínum, steinefnum og andoxunarefnum og brokkolísprettur eru þekktar fyrir hátt innihald af súlforafani, efni sem hefur verið rannsakað fyrir mögulegan stuðning við ónæmiskerfi og almennt heilbrigði.
VAXA sprettir (blandaðar og brokkolí) fást hjá Pikkoló og eru alvöru næringarbomba sem passar bæði í heilsuskálar, samlokur og ofan á ristað brauð eins og hér.
Ég elska að bæta vel af sprettum ofan á allt möguleg, ekki bara fyrir ferskleikann og crunchið heldur líka vegna þess að þetta er svo einföld leið til að auka trefjar, vítamín og plöntunæringarefni í daglegu mataræði. Svo eru þær líka algjört augnayndi og gera allan mat svo fallegan.
Einfalt, fljótlegt, próteinríkt og styður við bata eftir æfingu 💪✨





Sprettubrauð – prótein og trefjaríkt ristabrauð með túnfisk, kotasælu og sprettum
- Súrdeigsbrauð
- Kotasæla
- Hágæða túnfiskur
- Soðið egg
- Blandaðar sprettur frá Vaxa
- Salt og pipar
Aðferð:
- Ristið súrdeigsbrauðið og setjið á það vel af kotasælu og túnfisk.
- Skerið soðna eggið í 4 hluta og raðið á brauðið, klippið vel af sprettum og raðið ofafn á brauðið.
- Kryddið til með salti og pipar og njótið.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar











