Linda Ben

Stökk hrísgjrjónaskál með BBQ kjúklingi

Recipe by
40 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Innnes | Servings: 4 manns

Ef þú hefur ekki prófað að baka hrísgrjón þar til þau verða stökk þá ertu að missa af!

Þessi stökka hrísgrjónaskál með BBQ kjúklingi er alveg svakalega góð. Hrísgrjónin eru fyrst soðin og svo bökuð með sesamolíu, soja og hvítlaukskryddi þar til þau verða gullin og stökk, sem gefur skálinni ótrúlega skemmtilega áferð.

Safaríkur kjúklingur, ferskt salat, agúrka, gulrætur og próteinríkar edamame baunir koma svo með ferskleikann og jafnvægið. Svo bindur góð Hickory BBQ sósa allt saman og gefur djúpt, reykt og aðeins sætt bragð sem passar fullkomlega með stökku hrísgrjónunum.

Þetta er svona réttur sem er bæði „comforting“ en ferskur og hollur á sama tíma. Öll fjölskyldan elskar þennan rétt!

stökk hrísgjrjónaskál með bbq kjúklingi

stökk hrísgjrjónaskál með bbq kjúklingi

stökk hrísgjrjónaskál með bbq kjúklingi

stökk hrísgjrjónaskál með bbq kjúklingi

stökk hrísgjrjónaskál með bbq kjúklingi

stökk hrísgjrjónaskál með bbq kjúklingi

stökk hrísgjrjónaskál með bbq kjúklingi

stökk hrísgjrjónaskál með bbq kjúklingi

Stökk hrísgjrjónaskál með BBQ kjúklingi

  • 2 1/2 dl hrísgrjón
  • 1 msk sesam olía
  • 1 msk soja sósa
  • 1 tsk hvítlaukskrydd
  • 700 g kjúklingalæri
  • Kjúklingakryddblanda
  • 150 g Salathaus
  • 300 g edamame baunir, frosnar
  • 1 agúrka
  • 3-4 gulrætur
  • Hunts Hickory BBQ sósa

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita.
  2. Kryddið kjúklingalærin og bakið inn í ofni í u.þ.b. 25-30 mín eða þar til þau eru elduð í gegn.
  3. Sjóðið hrísgrjónin þar til þau eru mjúk í gegn.
  4. Setjið hrísgrjónin í skál ásamt sesamolíu, soja sósu og hvítlaukskryddi. Blandið öllu vel saman.
  5. Setjið smjörpappír á ofnplötu og dreifið hrísgrjónunum á plötuna, bakið inn í ofni í 20-25 mín eða þar til þau eru orðið svolítið stökk. Kælið hrísgrjónin.
  6. Serjið frosnu edamame baunirnar í pott með vatni og sjóðið í 2-3 mín.
  7. Skerið salatið og agúrkuna niður, notið grænmetisflysjara til að skræla gulræturnar niður í strimla, setjið allt saman í skál.
  8. Skerið kjúklinginn niður í bita og bætið í skálina ásamt kældu stökku hrísgrjónunum.
  9. Hellið vel af bbq sósu yfir og blandið öllu vel saman.
  10. Berið fram með meira af bbq sósu.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Fylgstu með á Patreon!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

stökk hrísgjrjónaskál með bbq kjúklingi

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5