Undanfarið er ég búin að vera með algjört æði fyrir mini flipperum! Þetta er besta nammi í heimi ef þú spyrð mig. Þeir eru alls ekki eins og hefðbundnir sykurpúðar á bragðið, heldur svo miklu miklu betri.
Bollaköku uppskriftina hef ég gert ótal oft og þær slá alltaf í gegn! Ofur mjúkar og rakar kökur sem bráðna upp í manni.
Súkkulaði bollakökur með sykurpúða kremi og kexi
- 100 g hveiti
- 50 g kakó
- ¾ tsk lyftiduft
- ½ tsk matarsódi
- ¼ tsk salt
- 2 stór egg við stofuhita
- 100 g sykur
- 100 g púðursykur
- 80 ml bragðlítil olía
- 2 tsk vanilludropar
- 120 ml ab-mjólk
Sykurpúða krem:
- 250 g sykur
- ½ dl síróp
- ¾ dl vatn
- 140 g gerilsneiddar eggjahvítur
Skraut:
- 10 hafra kexkökur, muldar smátt niður
- sykurpúðar
Aðferð, kökur:
- Stillið ofninn á 175°C.
- Hrærið saman eggjum, sykrinum, púðursykrinum, vanilludropunum og olíunni.
- Í aðra skál blandið saman hveitinu, kakóinu, lyftidufti, matarsóda og salti. Blandið þurrefnunum saman við eggjablönduna til skiptis við ab-mjólkina í nokkrum skrefum. Passið að hræra ekki of mikið saman, heldur stoppa um leið og allt hefur blandast saman.
- Setjið pappírs bollakökuform í bollaköku álbakka. Setjið deigið í formið en fyllið formin aðeins til helminga svo kökurnar verði ekki of stórar. Bakið kökurnar í 15-20 mín eða þangað til þær eru bakaðar í gegn. Takið kökurnar úr ofninum og kælið.
Aðferð, krem og skreyting:
- Setjið sykur, síróp og vatn í pott. Bræðið sykurinn og hitið blönduna að 117°C (notið nammi hitamæli ef hann er til, annars sjóðiði blönduna í nokkrar mínútur, þetta gengur út á það að engin sykurkorn séu eftir)
- Þeytið eggjahvíturnar þangað til þær verða stífar, hellið þá sykursírópinu út í eggjahvíturnar í mjórri bunu og haldið áfram að þeyta í 10 mín eða þangað til þær eru orðnar mjög stífar aftur.
- Skiptið kreminu í tvo hluta, setjið annan hlutan í sprautupoka.
- Skerið gat ofan í bollakökurnar miðjar og sprautið kreminu ofan í gatið.
- Smyrjið hinum hlutanum af kreminu á kökurnar.
- Kveikið á ofninum og stillið á grillið. Raðið mini Flipperum á ofnplötu með smjörpappír. Setjið Flipperana inn í ofn og grillið þá í um það bil 3 mín eða þangað til kantarnir eru orðnir fallega brúnir. Það er mikilvægt að fylgjast rosalega vel með þeim inn í ofninum og líta aldrei af þeim, þeir geta ofbakast mjög hratt.
- Myljið kexkökurnar fínt niður, setjið mylsnurnar í skál eða á disk og veltið köku köntunum upp úr mylsnunum. Setjið mini Flipper ofan á hverja köku.
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á myndinni á Instagram @lindaben
Ég minni þig á að fylgjast með mér á Instagram en þar er ég oft að elda og baka og sýni “step-by-step” frá matseldinni. Ýttu hér til að fylgjast með á Instagram!
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben