Linda Ben

Súkkulaði ostakaka sem þarf ekki að baka

Recipe by
5 klst
Cook: Unnið í samstarf við Nóa Síríus

Súkkulaði ostakaka sem þarf ekki að baka er svo svakalega góð!

Uppskriftin er unnin út frá uppáhalds ostaköku okkar allra (a.m.k. ef ég miða við hversu vinsæl uppskriftin er) Ostakökunni hennar Mömmu en hér er hún komin í súkkulaðibúning. Ef þú elskar ostakökur og súkkulaði þá máttu ekki láta þessa framhjá þér fara, hún er alveg svakalega góð!

Súkkulaði ostakaka

Súkkulaði ostakaka

Súkkulaði ostakaka

Súkkulaði ostakaka

Súkkulaði ostakaka

Súkkulaði ostakaka    

Súkkulaði ostakaka

  • 250 g Oreo kexkökur
  • 100 g smjör
  • 400 g rjómaostur
  • 200 g Síríus suðusúkkulaði
  • 6 dl rjómi, skipt í 5 dl þeyttur og 1 dl til að blanda í súkkulaði

Krem

  • 200 g suðusúkkulaði
  • 1 dl rjómi

Aðferð:

  1. Myljið kexið í matvinnsluvél eða blandara þangað til það er orðið að fínu mjöli.
  2. Bræðið smjörið og blandið því saman við kex mjölið.
  3. Takið stórt smelluform, 24 cm í þvermál, setjið smjörpappír í botninn og lokið forminu. Gott er að klippa renning af smjörpappír, jafn stóran og hliðar formsins, og leggja upp að hliðunum líka.
  4. Þrístið kexblöndunni í botninn á forminu og setjið í frysti.
  5. Setjið 1 dl rjóma og 200 g suðusúkkulaði í pott, bræðið varlega og kælið svo blönduna að stofuhita.
  6. Rjómaostur er hrærður og blandið súkkulaðibráðinni saman við.
  7. Þeytið rjómann og blandið honum svo varlega saman við rjómaostablönduna með sleikju.
  8. Hellið deiginu í formið, sléttið toppinn á kökunni og setjið í frystinn í 3-4 klst eða yfir nótt (má líka vera lengur í fyrsti ef þið viljið gera kökuna með lengri fyrirvara)
  9. Takið kökuna úr fyrstinum 3-4 tímum áður en hún er borin fram.
  10. Bræðið varlega saman súkkulaði og rjómann, hrærið vel saman þangað til súkkulaðisósa hefur myndast. Leyfið súkkulaðisósunni að kólna og hellið svo yfir kalda kökuna.
  11. Fjarlægið smelluforms hringinn og smjörpappírinn og berið fram kökuna.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Súkkulaði ostakaka

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5