Súkkulaði vatnsdeigsbollur með Nóa kroppi.
Ef þú elskar súkkulaði og Nóa Kropp þá eru þessar bollur fyrir þig! Algjör súkkilaðisæla borin fram á aðeins óhefðbundinn hátt sem kemur ótrúlega vel út.
Súkkulaði vatnsdeigsbollur með Nóa kroppi
Vatnsdeigsbollur
- 125 g smjör/smjörlíki
- 1 msk sykur
- 275 ml vatn
- 170 g hveiti
- 1 tsk lyftiduft
- ½ tsk salt
- 3-4 egg
Aðferð:
- Kveiktu á ofninum og stilltu á 180°C og blástur.
- Smjör, sykur og vatn er sett í pott og soðið saman í 2-3 mín. Slökktu svo undir pottinum.
- Hveiti, lyftiduft og salt er sett í skál, bættu því út í smjör-vatnið og hrærðu vel saman með sleif. Deigið á að vera þétt og lyftast upp frá brúnum pottsins. Láttu standa í 5 mín. Færðu deigið í hrærivél.
- Settu þrjú egg út í deigið, eitt og eitt í einu og hrærðu þau vel saman við deigið. Vegna þess að egg eru misttór eru mismunandi hversu mikið þú þarft af seinasta egginu. Áferðin á deiginu á að vera þannig að deigið lekur hægt og svolítið erfiðlega af sleifinni á nokkrum sekúndum. Deigið á að halda nokkurveginn sömu lögun eftir að þú setur það á plötuna en ekki leka út og verða flatt. Settu seinasta eggið í litla skál og hrærðu það saman. Settu 1 msk af egginu í einu út í og hrærið vel á milli þangað til þú ert komin með rétta áferð á deigið.
- Settu smjörpappír á ofnplötu og settu deigið í sprautupoka eða matskeiðar til að útbúa bollurnar (2 msk ein bolla). Hafðu gott pláss á milli bollanna því þær stækka mikið í ofninum, gott að miða við um það bil 12 bollur á hverja plötu.
- Bollurnar eru bakaðar í 20-25 mín en ekki opna ofninn fyrr en allavega 20 mín eru liðnar. Þá er hægt að taka eina út og meta hversu margar mínútur bollurnar eiga eftir, en þú sérð það þegar þú opnar bolluna og sérð hversu blaut hún er inní.
Fylling og hjúpur
- 500 ml rjómi
- 300 g mini Nóa Kropp
- 300 g suðusúkkulaði
Aðferð:
- Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og kælið súkkilaðið aftur að u.þ.b. rúmlega stofuhita, en passið að það stirðni samt ekki.
- Þeytið rjómann og setjið 150 g mini Nóa Kropp út í rjómann, blandið saman.
- Skerið bollurnar ekki alveg í helminga heldur þannig að toppurinn er ennþá fastur á. Fyllið bollurnar með rjómanum og sléttið úr rjómanum svo hann sé alveg sléttur við bollurnar.
- Notið teskeið til að hella súkkulaði yfir aðra hlið bollanna þannig að önnur hliðin sé alveg hjúpuð. Setjið mini Nóa Kropp yfir súkkulaðið.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar
Category: