Það er eitthvað við klassíska súkkulaðiköku með smjörkremi sem klikkar aldrei, en þegar karamellan fær að spila aðalhlutverkið fer hún upp á næsta level.
Hér nota ég Ljúffengu súkkulaðiköku þurrefnablönduna frá Lindu Ben, sem gefur djúpa, mjúka og safaríka köku á einfaldan hátt. Fullkomin þegar þú vilt örugga útkomu.
Kremið er svo alveg svakalega gott. Töggu rjómakaramellurnar frá Nóa Síríus eru bræddar saman við smjör og síðan þeyttar í loftmikið smjörkrem sem er silkimjúkt og með ríku karamellubragði sem gerir mann háðan.
Þetta er svona kaka sem hentar jafnt í afmæli, fermingar, saumaklúbb eða þegar þig langar bara í alvöru súkkulaðiköku með einstakelga góðu kremi. Hún er einstaklega ljúffengt, falleg og algjör showstopper á kökuborðinu ✨







Súkkulaðikaka með karamellu smjörkremi
- Ljúffeng súkkulaðikaka þurrefnablanda Linda Ben
- 3 egg
- 1 dl vatn
- 1 1/2 dl bragðlítil olía
Karamellu smjörkrem
- 500 g mjúkt smjör (skipt í 200 g og 300 g)
- 500 g flórsykur
- 240 g Töggur rjómakaramellur frá Nóa Síríus
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
- Setjið súkkulaði þurrefnablönduna í skál ásamt eggjum, olíu og vatni, hrærið þar til orðið að mjúku deigi.
- Smyrjið þrjú 20 cm smellufom vel svo þau verði alveg hvít. Skiptið súkkulaðikökudeiginu á milli formanna og bakið í u.þ.b. 20 mín eða þar til kökurnar eru bakaðar í gegn. Kælið kökurnar og útbúið kremið á meðan.
- Setjið karamellurrnar og 200 g af smjöri í pott og bræðið varlega saman. Kælið að stofuhita.
- Setjið smjörið og flórsykur í hrærivél og þeytið saman, bætið kældu karamellunni út í og þeytið þar til létt, mjúkt og loftmikið (þeyta í a.m.k. í 5 mín). Setjið kremið í sprautupoka.
- Setjið fyrsta kökubotninn á kökudisk. Sprautið smá kökukremi á botninn og sléttið úr. Setjið næsta kökubotn ofan á og endurtakið. Þegar þið setjið þriðja og efsta kökubotninn á þá setjiði krem yfir hann og hliðar kökunnar. Sléttið úr kreminu.
- Sprautið því sem eftir er af kreminu ofan á kökuna.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar












