Súkkulaðisnúðar með krönsí kextoppi
Ef þú elskar mjúka, ilmandi snúða og vilt taka þá upp á næsta level, þá eru þessir fyrir þig!
Þessir súkkulaðisnúðar eru dúnmjúkir og fylltir með súkkulaðifyllingu, en það sem gerir þá alveg sérstaka er krönsí kextoppurinn. Mulið Noir kex frá Frón gefur bæði fyllingunni og toppnum ómótstæðilega stökka áferð og djúpt súkkulaðibragð sem passar fullkomlega með mjúku snúðunum.
Þetta eru snúðar sem klárast hættulega hratt!
Fullkomnir í kósýkvöldið, í afmæli, fyrir helgarbaksturinn eða þegar þig langar einfaldlega í eitthvað dásamlega gott með kaffinu.










Súkkulaðisnúðar með krönsí kextoppi
- 7 g þurrger
- 120 ml volgt vatn
- 120 ml volg mjólk
- ½ dl sykur
- 80 g brætt smjör
- 1 tsk salt
- 1 egg
- 450 g hveiti
Aðferð
- Byrjað er á að setja volgt vatn og volga mjólk ásamt gerinu í litla skál og hrært smá til að þurrgerið blotni.
- Setjið sykur, smjör, salt og egg í stóra skál og hrærið saman.
- Bætið svo nánast öllu hveitinu út í, skiljið um það bil 50 g eftir, og hellið gerblöndunni líka ofan í stóru skálina. Hnoðið deigið saman þangað til allt hefur blandast vel. Deigið á að vera klístrað en ef það er ennþá mjög blautt setjið þá restina af hveitinu út í.
- Látið deigið hefast í 1 – 1 ½ klst eða þangað til deigið hefur tvöfaldast í stærð.
Fylling:
- 100 g mjúkt smjör
- 1 dl súkkulaðismjör
- 240 g Noir kex frá Frón – skipt í 120 g og 120 g
Aðferð:
- Þegar deigið hefur hefað sig dreifið þið svolítið af hveiti á borðið, takið deigið úr skálinni og fletjið það út í um það bil 20×40 cm flöt.
- Blandið saman mjúku smjöri og súkkulaðismjöri í skál, hrærið þar til blandað saman. Smyrjið fyllingunni yfir allt deigið og myljið helmingnum af kexinu yfir.
- Rúllið svo upp deiginu frá 40 cm endanum í lengju og skerið hana svo í 12 – 15 bita.
- Smyrjið frekar stórt eldfast mót með smjöri og raðið snúðunum ofan í formið, það má vera frekar rúmt á milli snúðanna því þeir eiga eftir að stækka.
- Leggið hreint viskustykki yfir formið og látið snúðana hefast í um það bil 30 mín.
- Stillið ofninn á 175°C og undir og yfir hita.
- Setjið snúðana í ofninn og látið bakast í 35-45 mín (tími fer eftir hversu þykkir snúðarnir eru) eða þangað til þeir eru orðnir fallega gullnir á litinn.
Glassúr:
- 4 msk smjör
- 400 g flórsykur
- ½ tsk vanilludropar
- 2-3 msk heitt vatn
- 2 msk rjómaostur (má sleppa, en er voðalega gott)
Aðferð:
- Á meðan snúðarnir eru í ofninum er gott að útbúa glassúrið. Það er gert með því að bræða smjörið í potti og bæta svo flórsykrinum útí og hrært vel.
- Bætið svo vanilludropunum útí ásamt heitu vatni. Best er að setja vatnið hægt út í og hræra vel eftir hverja skeið. Setjið 2 skeiðar ef þið viljið sleppa rjómaostinum, annars 3 msk. Hrærið rjómaostinn saman við.
- Smyrjið svo glassúrinu yfir í því magni sem þið viljið og myljið það sem eftir er af Noir kexinu.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar












