Sweet chillí kjúklingavefjur.
Þessar sweet chillí kjúklingavefjur eru fullkomið dæmi um hversu einfaldur matur getur verið ótrúlega bragðmikill. Safaríkur kjúklingur með hvítlauk, engifer og sweet chillí sósu, ferskt grænmeti og kóríander, allt vafið saman í mjúka vefju sem klikkar ekki.
Þetta er svona réttur sem hentar jafnt á annasömum virkum degi eða þegar maður vill eitthvað létt en samt „wow“. Hentar vel til að undirbúa heima og taka með í nesti. Með fersku salati, sprettum og kryddjurtum frá Vaxa fær rétturinn bæði ferskleika og fallega áferð sem lyftir honum upp.
Fljótlegt, litríklegt og algjör fjölskyldusigur.





Sweet chillí kjúklingavefjur
- Stórar vefjur
- 700 g kjúklingalæri
- Salt og pipar
- 4 hvítlauksgeirar
- u.þ.b. 2-3 cm engifer
- 1 dl sweet chillí sósa + meira beint á vefjurnar
- 1 msk soja sósa
- 1 msk ólífu olía
- Salatblanda frá Vaxa
- Gulrætur
- Rauð paprika
- Sólblóma og radísu sprettur frá Vaxa
- Kóríander frá Vaxa
- Sesamfræ
Aðferð:
- Setjið kjúklingalærin í skál ásamt salt og pipar. Rífið hvítlauksgeira og engifer út á með rifjárni. Setjið einnig chillí sósu, soja sósu og ólífu olíu. Blandið öllu vel saman og leyfið að marinerast í 30 mín (lengur ef tími gefst til, má líka elda strax ef enginn tími gefst í marineringu).
- Steikið á pönnu þar til eldað í gegn. Skerið í strimla.
- Skerið gulrætur og paprikur í strimla.
- Setjið svolítið af chillí sósu á vefjurnar, setjið vel af salatblöndu í botninn, gulrætur og paprikur yfir. Setjið kjúkling ofan á ásamt sprettum, kóríander og svolítið af sesamfræjum. Lokið vefjunum og njótið.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar










