Sykurlaust bananabrauð
- 3 vel þroskaðir bananar
- 60 g brætt smjör
- 1 egg
- 1 tsk vanilludropar
- 250 g hveiti
- 1 tsk salt
- 1 tsk matarsódi
- 1 tsk kanill
- 170 g Örnuskyr með vanillu
- 50 g pekanhnetur + meira til að setja ofan á brauðið ef þið viljið
Aðferð:
- Stillið ofninn á 175ºC.
- Bræðið smjörið og kælið það niður.
- Setjið bananana í hrærivélina og hrærið þangað til þeir eru fullkomlega maukaðir.
- Hellið smjörinu út í banana ásamt eggi og vanilludropum.
- Blandið saman í aðra skál hveiti, salti, matarsóda og kanil.
- Blandið því saman við bananablönduna og hellið skyrinu svo út í hægt og rólega.
- Saxið pekanhneturnar niður og bætið þeim út í deigið.
- Hellið deiginu í brauðform sem hefur verið klætt með smjörpappír. Ef þið viljið þá getið þið sett pekanhnetur og kanil ofan á brauðið sem skraut en þið megið sleppa því.
- Bakið brauðið í um það bil 45 mín eða þangað til brauðið er bakað í gegn.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar
Category: