Linda Ben

Þorskhnakkar bakaðir í hvítlaukssmjöri með stökkum brauðrasptoppi

Recipe by
30 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Samherja | Servings: 4 manns

Stundum þarf ekki flókna uppskrift til að búa til alvöru lúxus máltíð, oftast þarf bara góð hráefni og réttu bragðsamsetninguna. Þessi réttur er einmitt hugsaður með sömu nálgun og þegar ég elda humar: smjör, hvítlaukur, sítróna, steinselja og brauðraspur. Einföld samsetning en öll hráefnin njóta sín til fulls.

Hér nota ég þorskhnakkana Besti bitinn frá Samherja. Þorskhnakkarnir eru þykkir og safaríkir bitar úr besta hluta flaksins sem haldast einstaklega mjúkir og fallegir við eldun, fullkomnir þegar maður vill gera fiskrétt sem er bæði einfaldur og góður.

Fiskurinn er bakaður í ilmandi hvítlaukssmjöri með sítrónuberki og steinselju, og ofan á er grófur súrdeigsbrauðraspue sem verður gylltur og stökkur í ofninum. Útkoman er safaríkur fiskur með smjörkenndu bragði og skemmtilegu crunchi ofan á.

Með mjúkri sætkartöflumús verður þetta réttur sem er bæði kósý og fágaður á sama tíma, svona kvöldmatur sem minnir meira á góðan veitingastað en hversdagsmat heima.

Algjör lúxus á einfaldan hátt.

Þorskhnakkar bakaðir í hvítlaukssmjöri með stökkum brauðrasptoppi

Þorskhnakkar bakaðir í hvítlaukssmjöri með stökkum brauðrasptoppi

Þorskhnakkar bakaðir í hvítlaukssmjöri með stökkum brauðrasptoppi

Þorskhnakkar bakaðir í hvítlaukssmjöri með stökkum brauðrasptoppi

Þorskhnakkar bakaðir í hvítlaukssmjöri með stökkum brauðrasptoppi

Þorskhnakkar bakaðir í hvítlaukssmjöri með stökkum brauðrasptoppi

  • 4 x 125 g Besti bitinn þorskhnakkar frá Samherja
  • 100 g smjör
  • 4-5 hvítlauksgeirar
  • 15 g fersk steinselja – skipt til helminga og notuð 2 í uppskriftinni
  • Börkur af 1 sítrónu
  • 1/2 paprikukrydd
  • Salt og pipar
  • Nokkrar súrdegisbrauðssneiðar – best ef þær eru 1-2 daga gamalar

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita.
  2. Bræðið smjörið í potti, rífið hvítlauksgeirana út í pottinn og ríifð sítrónubörkinn út í smjörið líka. Skerið helminginn af steinseljunni smátt niður og bætið einnig út í smjörið, blandið öllu saman.
  3. Setjið súrdeigsbrauðsneiðarnar í blandara eða matvinnsluvél og blandið þar til orðið að grófri mynslu.
  4. Setjið þorskhnakkana í eldffastmót, þerrið með eldhúspappís og setjið vel af brauðmynslum yfir. Hellið kryddsmjörinu varlega yfir (passið að brauðið detti ekki af), kryddið með paprikukryddi, salti og pipar. Bakið inn í ofni í 15 mín.
  5. Berið fram ofan á sætkartöflumús með ferskri steinselju.

Sætkartöflumús

  • 1 stór sæt kartafla
  • 100 g smjör

Aðferð:

  1. Skerið sætu kartöfluna þvert í helming og bakið hana inn í 200°C heitum ofni i u.þ.b. 45 mín eða þar til hún er mjúk í gegn. Setjið í skál án hýðis ásamt smjöri og hrærið saman.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Fylgstu með á Patreon!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Þorskhnakkar bakaðir í hvítlaukssmjöri með stökkum brauðrasptoppi

Category:

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5