Linda Ben

Vanillukaka með ostakökutoppi

Recipe by
40 mín
Cook: Unnið í samstarfi við Innnes | Servings: U.þ.b. 24 bitar

Ef þú ert að leita að einfaldri köku fyrir veisluna sem slær alltaf í gegn hvort sem er í fermingu, afmæli, útskrift, saumaklúbbi eða öðrum veislum, þá er þessi vanillukaka með ostakökutoppi algjör snilld.

Botninn er mjúk og sjúklega djúsí vanillukaka sem bráðnar saman við toppinn sem er ostakaka. Útkoman er alveg ótrúlega „chewy“ og næs, svona áferð sem gerir mann háðan. Samspilið milli léttu vanillukökunnar og milda rjómaostsins er dásamlegt og kakan þarf ekkert krem eða flókna skreytingu. Hún er falleg og tilbúin beint úr ofninum.

Þetta er akkúrat svona kaka sem er þægilegt að skera niður, raða á bakka og bera fram með ferskum hindberjum (eða öðrum berjum). Hún hentar sérstaklega vel  í standandi veislur, þar sem gott er að hafa kökur sem auðvelt er að taka í litlum bitum.

Annar stór plús? Þú getur bakað hana með góðum fyrirvara. Pakkaðu henni vel inn í plastfilmu og geymdu í frysti, fullkomið þegar þú ert að skipuleggja fermingu, veislu eða stórt kökuborð og vilt minnka stressið síðustu dagana.

Vanillukaka með ostakökutoppi

Vanillukaka með ostakökutoppi

Vanillukaka með ostakökutoppi

Vanillukaka með ostakökutoppi

Vanillukaka með ostakökutoppi

Vanillukaka með ostakökutoppi

Vanillukaka með ostakökutoppi

Vanillukaka með ostakökutoppi

Vanillukaka með ostakökutoppi

Vanillukaka með ostakökutoppi

Vanillukaka með ostakökutoppi

  • 1 pakki (500 g) Ljúffeng Vanillukaka þurrefnablanda Lindu Ben
  • 3 egg + 3 egg notuð í sitthvoru lagi
  • 1 dl vatn
  • 1 1/2 dl bragðlítil olía eða brætt smjör
  • 300 g Philadelphia rjómaostur
  • 500 g flórsykur
  • Hindber – sem skraut, má sleppa eða skipta út fyrir annað

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 175, undir og yfir hita.
  2. Byrjið á því að útbúa vanillukökudeigið með því að setja vanilluköku þurrefnablönduna í skál ásamt 3 eggjum, vatni og olíu/bræddu smjöri. Hrærið vel saman og hellið svo blöndunni í smjörpappírsklætt 30×40 cm stórt kökuform (eða sambærilega stórt). Dreifið úr með sleikju svo deigið fari jafnt um allt kökuformið
  3. Í aðra skál setjiði rjómaost, 3 egg og flórsykur, hrærið saman og hellið svo yfir vanillukökudeigið, dreifið út með sleikju svo deigið fari jaffnt um allt kökuformið.
  4. Bakið í u.þ.b. 30 mín eða þar til endarnir eru bakaðir í gegn en miðjan en ennþá smá blaut, kakan á að verða aðeins byrjuð að gullinbrúnast.
  5. Kælið kökuna og takið hana svo úr forminu. Skerið hana í litla bita og raðið hidberjum á hvern bita. Raðið á fallegan bakka.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Fylgstu með á Patreon!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Vanillukaka með ostakökutoppi

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5