Linda Ben

Vatnsdeigsbollur með vanillukremi og jarðaberjasultu

Recipe by
1 kist og 30 Mín
Cook: Unnið í samstarfi við ÍSAM | Servings: 15 - 18 bollur

Vatnsdeigsbollur hljóma oft flóknari en þær eru í raun. Margir eru smeykir við að baka þær, hræddir um að þær falli saman, verði blautar að innan eða lyftist ekki rétt. Sannleikurinn er sá að vatnsdeig er eitt af einfaldari deigum þegar þú þekkir nokkur lykilatriði.

Það mikilvægasta við vatnsdeigsbollur er:

  • að eggjum sé bætt út í smátt og smátt, þar til áferðin er rétt

  • að bollurnar séu allar svipað stórar
  • að ofninn sé alls ekki opnaður of snemma, bollurnar þurfa gufu og hita til að pöffast og verða holar að innan

  • að taka þær ekki of snemma út úr ofninum, þær verða að vera bakaðar í gegn.

Þegar passað er upp á þessi atriði verða þær léttar, fallega gylltar og fullkominn grunnur fyrir alls kyns fyllingar.

Í þessari uppskrift eru bollurnar fylltar með silkimjúku og einföldu vanillukremi og jarðaberjasultu frá St. Dalfour, klassísk blanda sem klikkar aldrei.

Sulturnar frá St. Dalfour eru nú komnar í stærri krukkur, sem gerir þær enn þægilegri í notkun. Það er einfalt að setja matskeið ofan í krukkuna og meira magn þýðir að þú þarft ekki að fara sparlega með sultuna.

Vatnsdeigsbollur með vanillukremi og jarðaberjasultu

Vatnsdeigsbollur með vanillukremi og jarðaberjasultu

Vatnsdeigsbollur með vanillukremi og jarðaberjasultu

Vatnsdeigsbollur með vanillukremi og jarðaberjasultu

Vatnsdeigsbollur með vanillukremi og jarðaberjasultu

Vatnsdeigsbollur með vanillukremi og jarðaberjasultu

Vatnsdeigsbollur

  • 125 g smjör/smjörlíki
  • 1 msk sykur
  • 275 ml vatn
  • 170 g hveiti
  • 1 tsk lyftiduft
  • ½ tsk salt
  • 3-4 egg

Aðferð:

  1. Kveiktu á ofninum og stilltu á 180°C og blástur.
  2. Smjör, sykur og vatn er sett í pott og soðið saman í 2-3 mín. Slökktu svo undir pottinum.
  3. Hveiti, lyftiduft og salt er sett í skál, bættu því út í smjör-vatnið og hrærðu vel saman með sleif. Deigið á að vera þétt og lyftast upp frá brúnum pottsins. Láttu standa í 5 mín. Færðu deigið í hrærivél.
  4. Settu þrjú egg út í deigið, eitt og eitt í einu og hrærðu þau vel saman við deigið. Vegna þess að egg eru misttór eru mismunandi hversu mikið þú þarft af seinasta egginu. Áferðin á deiginu á að vera þannig að deigið lekur hægt og svolítið erfiðlega af sleifinni á nokkrum sekúndum. Deigið á að halda nokkurveginn sömu lögun eftir að þú setur það á plötuna en ekki leka út og verða flatt. Settu seinasta eggið í litla skál og hrærðu það saman. Settu 1 msk af egginu í einu út í og hrærið vel á milli þangað til þú ert komin með rétta áferð á deigið.
  5. Settu smjörpappír á ofnplötu og settu deigið í sprautupoka eða matskeiðar til að útbúa bollurnar (2 msk ein bolla). Hafðu gott pláss á milli bollanna því þær stækka mikið í ofninum, gott að miða við um það bil 12 bollur á hverja plötu.
  6. Bollurnar eru bakaðar í 20-25 mín en ekki opna ofninn fyrr en allavega 20 mín eru liðnar. Þá er hægt að taka eina út og meta hversu margar mínútur bollurnar eiga eftir, en þú sérð það þegar þú opnar bolluna og sérð hversu blaut hún er inní.

Fylling

  • Budding Vanillukrem frá Dr. Oetker
  • 1 líter mjólk
  • 100 g sykur
  • Jarðaberja sulta frá St. Dalfour

Aðferð:

  1. Setjið Budding duftið í skál ásamt sykri og 2 dl mjólk, hrærið saman.
  2. Setjið 8 dl mjólk í pott og hitið að suðu, slökkvið undir pottinum. Setjið budding blönduna í pottinn og hrærið vel og kröftulega saman. Kveikið aftur undir pottinum á lágan hita og hrærið stanslaust kröftuglega í minnst 1 mín.
  3. Hellið vanillukreminu í skál og setjið í kæli í a.m.k. 1 klst eða þar til blandan er orðin alveg köld.
  4. Þegar vanillukremið er orðið alveg kalt, hrærið það þá aftur vel svo það verði kekklaust. Setjið í sprautupoka ef þið viljið.
  5. Skerið vatnsdeigsbollurnar í helminga og setjið jarðaberjasultu í botninn. Sprautið vanillukreminu á bollurnar, líka hægt að setja það á bollurnar með skeið. Lokið bollunum.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Fylgstu með á Patreon!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Vatnsdeigsbollur með vanillukremi og jarðaberjasultu

Leave a Review

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

1 2 3 4 5